Erlent

Fimm sagðir látnir í skot­á­rás nærri Ham­borg

Kjartan Kjartansson skrifar
Frá Hamborg. Stade er um 35 kílómetra vestur af borginni.
Frá Hamborg. Stade er um 35 kílómetra vestur af borginni. Vísir/EPA

Byssumaður er sagður hafa skotið fimm manns til bana í bænum Stade nærri Hamborg í Þýskalandi. Lögregla segir að karlmaður hafi verið handtekinn.

Lögreglan í Stade varaði fólk við því að vera á ferli nærri vettvangi skotárásarinnar í Dankers-stræti þar sem meiriháttar lögregluaðgerð væri í gangi. Karlmaður væri í haldi lögreglu, að því er segir í frétt þýska miðilsins DW.

Stade er um fimmtíu þúsund manna bær vestur af Hamborg í Neðra-Saxlandi í norðanverðu Þýskalandi.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×