Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. júní 2026 12:12 Céline Dion ávarpaði keppnina í Basel í Sviss í fyrra en hún sigraði Eurovision fyrir hönd landsins árið 1988. Hún gæti nú tekið þátt fyrir hönd heimalandsins Kanada, í orði að minnsta kosti. EPA/GEORGIOS KEFALAS Kanada er orðinn fullgildur meðlimur í Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva (e. EBU). Þetta þýðir að landið getur nú í fyrsta sinn tekið þátt í Eurovision.
Breska ríkisútvarpið greinir frá en þar kemur fram að CBC/Radio-Canada sjónvarpsstöðin hafi hlotið inngöngu í EBU. Mark Carney forsætisráðherra Kanada hefur viðrað þá hugmynd að landið taki þátt í hinni árlegu söngvakeppni í árlegum fjárlögum fyrir sjónvarpsstöðina. Hann vill efla tengsl landsins við Evrópu, í ljósi stirðra samskipta við Bandaríkin, að því er segir í umfjöllun ríkisútvarpsins. Yrði það að veruleika yrði Kanada ekki fyrsta landið utan Evrópu til að taka þátt. Ísrael og Ástralía keppa reglulega og þá tók Morokkó þátt árið 1980. Ríkisstjórn Carney lýsti því yfir í nóvember að hún hefði það til skoðunar ásamt CBC að keppa í Eurovision. Til þess hefði hún lagt til hliðar 150 milljón kanadíska dollara, eða því sem nemur þrettán milljörðum íslenskra króna. Samkvæmt reglum Eurovision hafa meðlimir EBU rétt til þess að taka þátt í keppninni. Áður en umsókn landsins var samþykkt var Kanada einungis áheyrnarmeðlimur. Þrátt fyrir að Kanada hafi ekki keppt í keppninni hefur landið átt þar fulltrúa, sem hafa komið, séð og sigrað. Árið 1988 keppti Céline Dion fyrir hönd Sviss og sigraði keppnina en hún er frá Quebec í Kanada.
Eurovision Kanada Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira