Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 08:45 Terrion Arnold spilar sem varrnarmaður hjá Detroit Lions þar sem hann helsta hlutverk er að loka á útherja mótherjanna. Getty/Kevin Sabitus Terrion Arnold, leikmaður NFL-liðsins Detroit Lions, hefur verið handtekinn en hann er grunaður um mörg tilfelli vopnaðs ráns og mannráns.
Arnold á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hann verður sakfelldur. Hinn 23 ára gamli leikmaður gaf sig fram við lögreglu á miðvikudag og er ákærður í átta liðum – fjórum fyrir vopnað rán og fjórum fyrir mannrán, að því er skrifstofa sýslumanns í Hillsborough-sýslu greinir frá við NFL.com. „Terrion Arnold neitar alfarið allri aðild að þeim atburðum sem liggja til grundvallar ákærunum og heldur fram sakleysi sínu,“ skrifar umboðsmaður hans, Denise White, í yfirlýsingu. #Lions CB Terrion Arnold has been arrested in connection with an armed robbery and kidnapping in Tampa, Florida, earlier this year, and is facing multiple felony charges that carry a maximum sentence of life in prison.The case will be filed with @HillsboroughSAO. pic.twitter.com/wPhwm1UMW2— Ari Meirov (@MySportsUpdate) June 25, 2026 Arnold er í gæsluvarðhaldi án möguleika á lausn gegn tryggingu og á að koma fyrir dómara á fimmtudag. Að sögn saksóknaraembættisins geta brotin varðað lífstíðarfangelsi. Saksóknari mun auk þess krefjast þess að Arnold verði haldið í gæsluvarðhaldi fram að réttarhöldum. Arnold er grunaður um að hafa tekið þátt í skipulagðri hefndaraðgerð í febrúar eftir innbrot á heimili hans í Flórída. Sex aðrir hafa áður verið handteknir, grunaðir um aðild að málinu. Að sögn lögreglu er Arnold talinn vera höfuðpaurinn á bak við atvikið, þar sem þrír menn voru að sögn barðir með skammbyssu, haldið föngnum undir vopnavaldi og rændir. Detroit Lions tilkynnir að félagið muni ekki tjá sig um málið af virðingu við yfirstandandi réttarferli. Arnold var valinn af Detroit Lions sem 24. leikmaðurinn í heildina í fyrstu umferð NFL-nýliðavalsins 2024. Á tveimur tímabilum hefur hann spilað 24 leiki, þar af 22 í byrjunarliði. Lions cornerback Terrion Arnold is facing multiple felony charges after he was arrested Wednesday in Tampa in connection with a robbery and kidnapping in early February.Story via @E_Woodyard:https://t.co/RiQSZXeYFz— Adam Schefter (@AdamSchefter) June 25, 2026
NFL Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Liverpool - Arsenal | Englandsmeistararnir mæta í Bítlaborgina Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Sjá meira