Golf

Clark í sér­flokki en þarf að byrja snemma eins og Gunn­laugur Árni

Sindri Sverrisson skrifar
Wyndham Clark var glaðbeittur á fyrsta degi Opna bandaríska mótsins í gær.
Wyndham Clark var glaðbeittur á fyrsta degi Opna bandaríska mótsins í gær. Getty/Warren Little

Wyndham Clark er langefstur eftir fyrsta keppnisdag en á enn eftir að ljúka fyrsta hringnum, á Opna bandaríska mótinu í golfi. Clark fer snemma af stað í dag líkt og Gunnlaugur Árni Sveinsson og fleiri kylfingar sem ekki náðu að ljúka hringnum áður en myrkrið skall á.

Keppni í gær var frestað um tvær klukkustundir vegna þoku og það hafði þau áhrif að ekki gátu allir kylfingar klárað fyrsta hring í gær.

Keppni hefst því að nýju nú í morgunsárið klukkan 10:35 að íslenskum tíma, eða klukkan 6:35 að staðartíma á Shinnecock Hills vellinum í New York-fylki, þar sem kylfingar klára fyrsta hring áður en annar hringur tekur við.

Áætlað er að Gunnlaugur Árni, sem nú er meðal neðstu manna á +9 höggum eftir 14 holur, hefji svo annan hring klukkan 12:40, í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Clark er á sex höggum undir pari eftir 16 holur í gær og er með fjögurra högga forskot á aðra kylfinga á þessum gríðarlega erfiða velli.

Talað hefur verið um að gott yrði að leika völlinn á pari en Clark náði að fimm fugla og einn örn, á 5. holu, en fékk skolla á 2. holu. Hann hóf leik á 10. teig og á því núna eftir að spila 8. og 9. brautina.

Næstir á eftir Clark, á -2 höggum, eru Sam Stevens, Max McGreevy, Matt Fitzpatrick, Dustin Johnson, Gary Woodland, Jon Rahm og Ryder Cowan en sá síðastnefndi er áhugakylfingur líkt og Gunnlaugur Árni.

Þeir Fitzpatrick, Johnson, Woodland og Rahm eiga eftir að ljúka fyrsta hring og á Rahm flestar holur eftir eða fimm.

Rory McIlroy, Ludvig Åberg, Max Greyserman, Brian Harman, Ben James, Corey Conners, Bryson DeChambeau, Ben Kohles og Angel Hidalgo eru jafnir í 9. sæti á -1 höggi, og eiga þrír síðastefndu enn eftir að ljúka fyrsta hring.

Stöðuna má sjá með því að smella hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×