Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júní 2026 07:00 Það var tilfinningarík stund fyrir Josimar „Vozinha“ Dias eftir hetjulega frammistöðu hans á móti Evrópumeisturum Spánar. Getty/Patrick Smith Ein af hetjunum á heimsmeistaramótinu grét eftir frábæra frammistöðu sína og ástæðan var móðir hans sem fékk ekki leyfi til að fylgjast með honum á stærsta sviðinu.
Tár hetjunnar höfðu áhrif og háttsettir menn toguðu í rétta spotta. Móðir Josimar „Vozinha“ Dias, 40 ára markvarðar Grænhöfðaeyja, sem missti af stórkostlegri frammistöðu sonar síns á heimsmeistaramótinu vegna vandræða með vegabréfsáritun, fær nú að ferðast til Bandaríkjanna eftir að leiðtogar þingsins og utanríkisráðuneytið gripu inn í málið. Vozinha varði sjö skot í leik Grænhöfðaeyja og Spánar á mánudag. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli, sem var vonbrigði fyrir stórveldið Spán, sem hefur verið talið líklegt til að vinna heimsmeistaratitilinn. View this post on Instagram A post shared by Goalkeepers (@goalkeepers) Eftir leikinn grét Vozinha og sagði frá því að móðir hans hefði ekki getað ferðast á heimsmeistaramótið þar sem hún hafði ekki efni á 15.000 dollara tryggingu sem utanríkisráðuneytið krefst af íbúum Grænhöfðaeyja til að fá vegabréfsáritun. „Henni tókst ekki að komast hingað vegna vegabréfsáritunarinnar, vegna peninganna sem það kostar. Ég myndi vilja að hún væri hér,“ sagði Vozinha. Grænhöfðaeyjar eru eitt af 50 löndum sem Trump-stjórnin setti kröfu á um tryggingarfé allt að 140.000 sænskum krónum fyrir vegabréfsáritun. Ástæðan er sú að því er haldið fram að margir dvelji áfram eftir að vegabréfsáritun þeirra rennur út. Eftir þessa uppljóstrun hafði Hakeem Jeffries, leiðtogi minnihlutans í fulltrúadeildinni, samband við Marco Rubio utanríkisráðherra til að greiða fyrir ferðalagi móður Vozinha, Önnu Candida Evora. Hún mun nú geta fengið vegabréfsáritun í tæka tíð til að vera viðstödd leik Grænhöfðaeyja gegn Úrúgvæ á sunnudag, að sögn Jeffries. Frammistaða Vozinha vakti það mikla athygli að fylgjendur hans á Instagram fóru úr fimmtíu þúsund og yfir tólf milljónir á tveimur sólarhringum. Heimildarmaður sem þekkir til málsins segir að móðir Vozinha sé ekki með gilt vegabréf eins og er og sé að vinna í að fá sér slíkt. Með Vozinha hefur fótboltaheimurinn eignast nýjan uppáhaldsleikmann og persónuleika. Grænhöfðaeyjar spila gegn Úrúgvæ í Miami aðfaranótt mánudags og gegn Sádi-Arabíu í Houston aðfaranótt laugardags í næstu viku. View this post on Instagram A post shared by The Washington Post (@washingtonpost)
HM 2026 í fótbolta Grænhöfðaeyjar Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Enski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira