Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Andri Broddason skrifar 17. júní 2026 23:32 Daniel Ricciardo er ánægður að ferillinn hans hélt ekki áfram. Vísir/getty Daniel Ricciardo segist hafa misst neistann í Formúlu 1 eftir að hafa flakkað á milli liða í lok ferilsins. Hann er þakklátur fyrir að Red Bull hafi stoppað ferilinn hans.
Daniel Ricciardo var einn efnilegasti ökuþór Formúlu 1 og var þekktur fyrir skemmtilegan ökustíl og að vera óhræddur við að fara í áhættusama framúrakstra. Undir lok ferilsins var fólk byrjað að efast um getu hans þar sem hann náði ekki alveg að standa undir væntingum. Ricciardo gekk til liðs við McLaren og náði í því liði sínum áttunda og síðasta sigri í Formúlu 1. Þrátt fyrir sigurinn var árangurinn hjá McLaren undir væntingum og hann varð liðalaus eftir tveggja ára dvöl hjá McLaren. Þá héldu margir að Ricciardo væri búinn að vera í íþróttinni en ári seinna keyrði hann með systurliði Red Bull, RB. Þar var hann í tvö ár en heillaði ekki marga og fékk ekki áframhaldandi samning og þurfti að hætta í Formúlu 1 eftir tímabilið 2024. Á því tímabili braut hann hendina sína eftir árekstur í hollenska kappakstrinum og hann fann að það væri byrjunin á endinum. Hann hafði í raun aldrei meiðst af alvöru en hann fann að neistinn var að fara. Að handleggsbrotna og missa af nokkrum kappökstrum gerði honum engan greiða. Þegar Ricciardo horfir til baka á ferilinn sinn er hann þakklátur fyrir að Red Bull hafi ekki boðið honum annan samning. Hann var ekki í nógu góðu standi til að vera enn þá í Formúlu 1 en hann neitaði að trúa því á þeim tíma. Ricciardo dáist að Fernando Alonso og Lewis Hamilton en þeir eru báðir komnir á fimmtugsaldurinn en halda áfram að keyra. Það er ekki að sjá að frammistaða þeirra sé að versna en Hamilton er sem stendur í öðru sæti heimsmeistaramótsins.
Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Körfubolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ Sport Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Selfyssingar syrgja Þjóðadeildin fer af stað í beinni Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt „Við erum ekki að ýta undir slagsmál en við erum að ýta undir ástríðu“ Owen farinn frá Val og boðað til fleiri breytinga Rjúkandi blys á vellinum þegar City skoraði en mótbárur Glódísar dugðu ekki Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Rómantískur Arnar mun alltaf tryggja Aroni met 13 ára sundkona vann þrenn verðlaun og virðist óstöðvandi Hvað er Onana að gera? Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki „Sjáum veikleika í þeirra leik“ Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Ekki sé verið að normalísera hraða: „Beina áhættuhegðun úr umferðinni“ Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Sjá meira