Körfubolti

Basile yfir­gefur Stólana og semur við Álfta­nes

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile spilar sitt sjöunda tímabil á Íslandi með liði Álftaness.
Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile spilar sitt sjöunda tímabil á Íslandi með liði Álftaness. Vísir / Guðmundur

Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Álftaness og mun leika með liðinu í Bónus deild karla í körfubolta á komandi leiktíð.

Álftnesingar segja frá þessum stórfréttum á miðlum sínum en fyrir aðeins nokkrum dögum sömdu þeir við Luka Gasic sem kemur frá Stjörnunni.

Dedrick er íslenskum körfuboltaáhugamönnum góðkunnur. Hann hóf feril sinn á Íslandi með Þór á Akureyri árið 2020 og hefur síðan þá leikið fyrir fleiri lið hérlendis og spilað margsinnis til lokaúrslita. Hann lék nú síðast fyrir Tindastól og var algjör lykilmaður í liði sem lék til lokaúrslita.

Á nýafstöðnu tímabili skilaði Basile 17,6 stigum og 7,2 stoðsendingum að meðaltali í leik í deildinni með Tindastól en í úrslitakeppninni var hann með 23,8 stig og 6,6 stoðsendingar í leik.

Hann hefur þannig fest sig í sessi sem einn allra besti leikmaður deildarinnar um árabil en þetta var hans sjötta tímabil í íslensku deildinni.

„Að landa leikmanni úr þessum gæðaflokki er mikill fengur fyrir félagið. Dedrick hefur sannað það síðustu ár að hann er einn öflugasti leikstjórnandi deildarinnar og munu styrkleikar hans falla vel að liðinu okkar,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, nýr þjálfari Álftanesliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×