Íslenskt lið komið inn á heimsleikana í CrossFit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júní 2026 21:30 Elín Birna Hallgrímsdóttir, Rökkvi Hrafn Guðnason, Bjarni Leifs Kjartansson og Guðbjörg Valdimarsdóttir tryggðu sér farseðil á heimsleikana. @elinbirna Lið CrossFit Reykjavíkur er búið að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana í CrossFit sem fara fram í lok næsta mánaðar.
Íslenska liðið náði þessu stóra takmarki með því að ná fimmta besta árangrinum í þeim hluta undanúrslitanna sem fór fram í gegnum netið. Sjö sæti voru í boði í þessum hluta en áður höfðu þrettán lið tryggt sér sæti í gegnum undanúrslitamótin víðs vegar um heiminn. Lið CrossFit Reykjavíkur var á eftir þremur liðum frá Bandaríkjunum og einu liði frá Argentínu. Liðið skipa margt af efnilegasta CrossFit-fólki landsins. Í liðinu eru Bjarni Leifs Kjartansson, Rökkvi Hrafn Guðnason, Elín Birna Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Valdimarsdóttir og Brynjar Ari Magnússon. Liðið lagði grunninn að því að tryggja sætið með því að ná öðru sætinu í þriðju grein og vinna fjórðu grein. Það kom því ekki að sök að ná bara 21. sætinu í lokagreininni. Íslenska liðið vann fjórðu greinina þar sem það náði að gera 187 jafnhendingar (e. clean & jerk) á tíu mínútum. Þetta var frábær frammistaða hjá okkar fólki. Það eru fleiri Íslendingar komnir inn á heimsleikana því Björgvin Karl Guðmundsson keppir einnig í liðakeppninni. BKG er í norska liðinu CrossFit Oslo Kriger sem tryggði sér farseðilinn sinn á French Throwdown undanúrslitamótinu í París. Alls taka tuttugu lið þátt í heimsleikunum sem fara fram í San Jose í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum frá 24. til 26. júlí. Þetta eru tímamótaheimsleikar enda þeir tuttugustu í röðinni. Ísland er ein tíu þjóða sem eiga lið á heimsleikunum í ár en langflest koma frá Bandaríkjunum eða átta af tuttugu. Argentína, Noregur og Ástralía eru öll með tvö lið.
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira