Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. júní 2026 08:05 Ríki Bandaríkjanna leita nú annarra leiða til að taka menn af lífi eftir að erfitt varð að komast yfir lyf til að framkvæma banvæna innspýtingu. Getty Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað umleitan Alabama um að fá að taka fanga af lífi með köfnunarefni. Yfirvöldum í ríkinu hafði áður verið hafnað á tveimur lægri dómstigum, með þeim rökum að um væri að ræða brot gegn ákveðum stjórnarskrárinnar gegn grimmilegum og óvenjulegum refsingum.
Eins og venjan er þegar um er að ræða neyðarúrskurð, þá var niðurstaða hæstaréttar ekki rökstudd en þó kom fram að dómararnir Clarence Thomas, Samuel Alito og Nei Gorsuch hefðu verið mótfallnir niðurstöðunni. Alríkisdómstóll bannaði aftökur með köfnunarefni fyrr í þessari viku, eftir réttarhöld þar sem sérfræðingar og vitni komu fyrir dóminn. Sjö hafa verið teknir af lífi í Alabama með notkun köfnunarefnis frá því í janúar 2024 en aðferðin hefur verið harðlega gagnrýnd, þar sem hún veldur köfnunartilfinningu og meðfylgjandi líkamlegri og andlegri þjáningu. Alabama óskaði eftir neyðarúrskurði hæstaréttar í gær, aðeins nokkrum klukkustundum áður en taka átti fangann Jeffrey Lee af lífi. Lee, sem er 49 ára, var fundinn sekur um að myrða tvo einstaklinga þegar hann framdi rán árið 1998. Kviðdómur dæmdi hann í lífstíðarfangelsi en dómarinn ógilti þá niðurstöðu og dæmdi Lee til dauða. Lögum hefur síðar verið breytt þannig að dómarar geta ekki lengur tekið fram fyrir hendur kviðdóma með þessum hætti. Ekki er útilokað að Lee verði tekinn af lífi með annarri aðferð en yfirvöld í Alabama segja niðurstöðu dómstóla varðandi aftökur með köfnunarefni vera svik við fjölskyldur fórnarlamba Lee, sem höfðu í hyggju að fylgjast með því þegar réttlætinu yrði fullnægt. Ríki Bandaríkjanna hafa á undanförnum árum leitað ýmissa leiða til að framkvæmda dauðarefsingar, eftir að lyfjafyrirtæki og erlend ríki fóru að neita að selja þeim lyf til að framkvæmda banvænar innspýtingar.
Bandaríkin Dauðarefsingar Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira