Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Árni Sæberg skrifar 3. júní 2026 12:49 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm Brottvísunarferli tíu fanga, sem afplánað hafa minnst þriðjung refsingar sinnar, hefst um leið og ný lög dómsmálaráðherra um brottvísanir fanga taka gildi. Mohamad Kourani er ekki einn þeirra en unnt verður að hefja brottvísunarferli hans eftir um þrjá mánuði.
Líkt og Vísir fjallaði um í gær samþykkti Alþingi á mánudag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um fullnustu refsinga. Með þeim verður heimilt að veita erlendum föngum sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Viðkomandi verður að því loknu tafarlaust vísað úr landi og sætir í framhaldinu endurkomubanni til landsins og á Schengen-svæðið eftir atvikum. Heimildin er tímabundin og gildir til 1. júlí 2027. Eðlilegt að fangar séu fluttir úr landi Í tilkynningu um lagabreytinguna á vef Stjórnarráðsins segir að í lögunum sé skýrt kveðið á um það að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu undir rafrænu eftirliti eða á áfangaheimili. „Það að fremja afbrot hér á landi á að hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir er eðlilegt að brotamanni verði vísað úr landi strax við reynslulausn og sæti endurkomubanni,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Tuttugu í heildina Undirbúningur vegna lagabreytingarinnar hafi staðið yfir hjá Fangelsismálastofnun og heimferðar-og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra að undanförnu. Brottvísunarferlið hjá um tíu hefjist um leið og lögin taka gildi. Allir tíu hafi hlotið dóm fyrir fíkniefnalagabrot og hafi engin tengsl við landið. Um tuttugu afpláni nú dóm í íslenskum fangelsum og séu með staðfesta brottvísun. Erlendum ríkisborgurum í íslenskum fangelsum hafi fjölgað mikið á undanförnum árum en í dag séu yfir sextíu með erlent ríkisfang að afplána dóm í fangelsum landsins. Með lagabreytingunni sé dregið úr þeim þrýstingi sem hafi verið á fangelsiskerfinu, boðunarlistar styttir og betri nýting tryggð. Fjölga líka rýmum Lagabreytingarnar séu liður í áframhaldandi vinnu ráðuneytisins við að styrkja fullnustukerfið og bregðast við stöðu fangelsismála. Unnið sé að fjölgun afplánunarrýma en undirbúningur að útboði fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir við opna fangelsið að Sogni hafi hafist í maí. Með þeim framkvæmdum fjölgi plássum þar úr 21 í 35. Auk þess sé lögð áhersla á að nýta betur heimildir til að flytja erlenda fanga til afplánunar í heimaríki. Þá sé undirbúningsvinna í fullum gangi fyrir framkvæmdir við nýtt öryggisfangelsi við Stóra-Hraun, sem verði mikilvægur áfangi í fangelsismálum hér á landi. Áætlaður heildarkostnaður sé 28,9 milljarðar. Byggingu þess verði skipt í tvo áfanga og ráðgert að fyrsta áfanga verði lokið 2031. Þegar fangelsisbyggingin er fullbyggð verði þar rými fyrir 128 afplánunarfanga. „Við erum að rjúfa kyrrstöðu síðasta áratugar í fangelsismálum. Þessi lagabreyting er ekki stök aðgerð heldur hluti af stærra samhengi. Við erum að fjölga fangelsisplássum, nýta þau betur og tryggja að fangelsin ráði við það hlutverk sem þeim er ætlað. Þessi tímabundna aðgerð hefur áhrif strax, léttir á fangelsiskerfinu og tryggir að plássin nýtist betur fyrir þá sem eiga að afplána refsingu hér á landi,“ er haft eftir dómsmálaráðherra.
Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Knapi datt af baki Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira