Gafst aldrei upp þrátt fyrir áfallið en komst ekki á heimsleikana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 12:32 Bergrós Björnsdóttir lét ekki heimsókn á sjúkrahús stoppa sig í að taka þátt í mótinu en varð á endanum að sætta sig við það að missa af heimaleikasæti. @bergrosbjornsdottir Bergrós Björnsdóttir náði ekki að tryggja sér farseðil á heimsleikana í CrossFit um helgina þegar undanúrslitamótið, MAD Fitness Festival, fór fram í Madrid á Spáni.
Bergrós hefur stimplað sig inn meðal þeirra bestu í CrossFit-heiminum á þessu tímabili með góðri frammistöðu í opna hlutanum og fjórðungsúrslitunum. Hún ætlaði sér því stóra hluti og að komast á heimsleikana í fullorðinsflokki í fyrsta sinn. Bergrós hefur áður náð að komast á verðlaunapall í unglingaflokki á heimsleikunum. Bergrós hefði þurft að ná einu af þremur efstu sætunum á þessu móti til að komast á heimsleikana í haust en varð á endanum að sætta sig við níunda sætið. Hún var þó ekki langt á eftir þeim sem enduðu í sætunum fyrir ofan. Bergrós varð fyrir miklu áfalli eftir fyrstu grein helgarinnar en að hennar sögn var um að ræða eina bestu frammistöðu hennar á ferlinum. „Það sem fylgdi hins vegar í kjölfarið var ein af ógnvænlegustu stundum lífs míns,“ skrifaði Bergrós í færslu á Instagram. „Til að gera langa sögu stutta gat ég hvorki gengið né talað um tíma. Blóðsykurinn minn sem og blóðþrýstingurinn mældist allt of lágur og ég missti meðvitund um stund.“ Flytja þurfti Bergrósu á nærliggjandi sjúkrahús og þótti ekki tilefni til frekara inngrips þegar þangað var komið. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir) Hún gafst samt ekki upp og var enn með í baráttunni fyrir lokadaginn eftir að hafa sýnt mikla þrautseigju í næstu greinum eftir þetta áfall. „Margt hefur ekki gengið mér í haginn um helgina, en einhvern veginn er ég enn í baráttunni um sæti á leikunum. Ég tek þessu tækifæri alls ekki sem sjálfsögðum hlut. Það er kominn tími til að leggja allt í sölurnar,“ skrifaði Bergós. Hún endaði með 460 stig, aðeins tveimur stigum frá áttunda sætinu, sex stigum frá sjöunda sætinu og 61 stigi frá heimsleikasæti. Guðbjörg Valdimarsdóttir varð í 19. sæti með 358 stig. Þær sem komust á heimsleikana voru Gabriela Migala frá Póllandi, Lucy McGonigle frá Írlandi og Ella Wilkinsson frá Bretlandi. Bestum árangri Íslendinga á mótinu náði Haraldur Holgersson sem varð í áttunda sæti hjá körlunum. Hann var einu sæti á undan Bergrós en vissulega fleiri stigum frá takmarkinu. Haraldur var tólf stigum frá sjöunda sætinu og 78 stigum frá sæti sem gaf þátttökurétt á heimsleikunum.
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira