Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 29. maí 2026 07:48 Benjamín Netanjahú sést hér með ráðherra sínum Itamar Ben-Gvir á ísraelska þinginu á dögunum. AP Photo/Ohad Zwigenberg Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segist hafa fyrirskipað hernum að stækka yfirráðasvæðið á Gasa ströndinni þannig að Ísraelar stjórni þar sjötíu prósentum af öllu landsvæði.
Þetta kom fram í máli hans á ráðstefnu í Ísrael í gær þar sem hann sagðist hafa skipað hernum að stækka yfirráðasvæðið jafnt og þétt og nú væri komið að því að taka tíu prósent í viðbót og fara í sjötíu prósent. Þetta þýðir að Ísraelar hafa gerst brotlegir við vopnahléssamningana sem Donald Trump hafði milligöngu um í október en þar var kveðið á um að Ísraelar myndu stjórna 53 prósentum af svæðinu og Palestínumenn restinni. Ísraelar hafa margsinnis gert árásir á Gasa svæðið frá því vopnahléinu var komið á og samkvæmt breska ríkisútvarpinu hafa um 738 Palestínumenn fallið í þeim árásum. Hvorki hefur gengið né rekið í samningaviðræðum milli Hamas-samtakanna og Ísrael en samkvæmt vopnahlésskilmálunum áttu Ísraelar að eftirláta Hamas sífellt meira af Gasa um leið og Hamas samtökin myndu afvopnast. Þess í stað segist Netanjahú ætla að kreista Hamasliða enn frekar og varnarmálaráðherran Israel Katz lét hafa eftir sér í vikunni að markmiðið væri að drepa alla þá sem komu að árásunum á Ísrael árið 2023 og að Hamas samtökin muni aldrei fá að stjórna Gasa á ný. Aðrir ráðherrar í Ísrael á borð við Ben-Gvir og Smotrich hafa síðan opinberlega talað um áætlanir sem miða að því að koma öllum Palestínumönnum á brott frá Gasa svæðinu og endurbyggja það með Ísraelskum landnemum.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Tengdar fréttir Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggismálaráðherra Ísrael, hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði erlendis og heima fyrir, eftir að hann deildi myndskeiði sem sýnir hann lítilsvirða aðgerðasinna sem voru handteknir þegar þeir reyndu að komast til Gasa. 21. maí 2026 10:15 Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Ísraelskir þjóðernissinnar kölluðu eftir dauða og tortímingu Palestínumanna í árlegri göngu sinni um palestínska hluta Austur-Jerúsalem í gær. „Megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ heyrðist hrópað er mannfjöldinn gekk í gegnum gamla borgarhlutann. 15. maí 2026 07:12 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Itamar Ben-Gvir, þjóðaröryggismálaráðherra Ísrael, hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði erlendis og heima fyrir, eftir að hann deildi myndskeiði sem sýnir hann lítilsvirða aðgerðasinna sem voru handteknir þegar þeir reyndu að komast til Gasa. 21. maí 2026 10:15
Hrópuðu „megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ Ísraelskir þjóðernissinnar kölluðu eftir dauða og tortímingu Palestínumanna í árlegri göngu sinni um palestínska hluta Austur-Jerúsalem í gær. „Megi þorp ykkar brenna“ og „Gasa er grafreitur“ heyrðist hrópað er mannfjöldinn gekk í gegnum gamla borgarhlutann. 15. maí 2026 07:12