Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Andri Broddason skrifar 28. maí 2026 17:47 Formúlu 1 liðið Alpine og tískuhúsið Gucci byrja samstarf á næsta tímabili. Alpine/Visir Ítalska tískuhúsið Gucci verður aðalstyrktaraðili Formúlu 1-liðsins Alpine. Samningurinn tekur gildi á næsta tímabili og mun liðið innihalda nafn Gucci ásamt því að bílarnir verða í litum tískuvörumerkisins.
Lið Renault í Formúlu 1 skipti um nafn og útlit árið 2021. Liðið fékk nafnið Alpine og einkenndist af bláum og bleikum bílum. Þegar samstarf Alpine og Gucci tekur gildi mun liðið heita „Gucci Racing Alpine Formula One Team“ og mun bera litaþema Gucci. Litaþemað einkennist af tveim dökkgrænum röndum með rauðri rönd á milli. Flavio Briatore er einn af aðalstjórnendum liðsins og nefnir að þetta samstarf opni á marga möguleika fyrir bæði kappakstursliðið og tískuhúsið. „Þetta lið er þekkt fyrir að gera hluti öðruvísi og hefur sýnt að tíska getur komið fyrst í mark í Formúlu 1.“ Flavio Briatore er þekktur innan Formúlu 1 en skandalar hafa einkennt feril hans. Hann var sakaður um svindl í Singapúr-kappakstrinum árið 2008 þegar hann var stjóri Renault-liðsins. Þá átti hann að hafa sagt öðrum ökumanni sínum að klessa viljandi á svo að hinn ökumaðurinn í liði hans, Fernando Alonso, myndi fá forskot í kappakstrinum. Alonso endaði á að vinna keppnina þökk sé liðsfélaga hans. Eftir kappaksturinn var Briatore ásakaður um að hagræða keppninni og endaði hann á að þurfa að segja af sér sem stjóri Renault. Hann gekk aftur til liðs við Renault 2024 en þá var liðið búið að breyta nafninu sínu í Alpine. Þegar hann kom til baka til liðsins var staða liðsins ekki góð. Hann fékk fulla stjórn á liðinu og er hann búinn að bæta bæði árangur og fjárhagslega stöðu liðsins. Alpine liðið hefur aldrei byrjað jafn vel eftir að liðið breytti um nafn og stendur liðið í fimmta sæti með 35 stig.
Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Dagskráin: Generalprufa enska landsliðsins fyrir HM Sport „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Segir styttast í fyrsta sigurinn Missti af verðlaunapalli og endaði í sjöunda sæti Nítján ára með athygli heimspressunnar: „Ekki lengur bara undrabarn“ Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Skilur ekki hvers vegna hann keyrir svona hægt Antonelli tók ráspólinn af Verstappen en Russell fer sjötti af stað Liðsstjóri Ferrari á spítala Fleiri lið reyndu að sækja Leclerc Verða fleiri framúrakstrar í Mónakó? Fékk nýjan samning en Ferrari gefur ekki upp árafjöldann Þykja Alpine liðið vera of dýrt Tískuhús blandar sér í Formúlu 1 Gætu þurft að stíga inn í eftir harða baráttu liðsfélaganna Sá fyrsti í sögu Formúlu 1 Antonelli styrkir stöðu sína í efsta sætinu George Russell og Lando Norris úr leik í Kanada Russell á ráspól í Kanada Fjórfaldur heimsmeistari slasaður eftir að brotist var inn til hans Mercedes ökumennirnir halda áfram að berjast Max Verstappen rétt missti af sigri Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Sjá meira