Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför Sindri Sverrisson skrifar 26. maí 2026 22:47 Alexia Putellas með verðlaunagripinn sem hún þekkir svo vel, eftir sigur Barcelona á Lyon í Meistaradeild Evrópu á laugardaginn. Getty/Judit Cartiel Alexia Putellas, tvöfaldur handhafi Gullboltans og ein allra besta fótboltakona sögunnar, hefur ákveðið að kveðja Barcelona eftir að hafa borið fyrirliðabandið á laugardag þegar liðið vann Meistaradeild Evrópu enn á ný.
Þessi miklu tíðindi koma nú þegar aðeins tvær vikur eru þar til að Putellas og liðsfélagar hennar í heimsmeistaraliði Spánar spila við Ísland á Laugardalsvelli, í lokaumferð undankeppni HM. Putellas, sem er 32 ára, hefur spilað með Barcelona síðustu 14 ár og verið lykilmaður í besta liði Evrópu en hún hefur fagnað sigri í Meistaradeildinni alls fjórum sinnum með liðinu. Putellas hefur auk þess orðið Spánarmeistari tíu sinnum og alls unnið 38 titla með Barcelona. Hún á markamet félagsins og hefur skorað 232 mörk í 507 leikjum. Aðeins Melanie Serrano á fleiri leiki að baki fyrir félagið og það munar bara níu leikjum á þeim. BBC segir að enska félagið London City Lionesses sé líklegt til að landa Putellas og að viðræður hafi staðið yfir síðustu mánuði. „Ég sagði að lokastundin myndi koma á meðan að ég væri upp á mitt besta, gæti gefið allt og hefði hundrað prósent orku,“ sagði Putellas í kveðju sinni á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Alexia Putellas (@alexiaputellas) „Núna er sú stund runnin upp. Þetta hefur verið fullkomin saga,“ sagði Putellas og hélt áfram. „[Þegar ég var sex ára] sá ég bara karlmenn spila á leikvanginum og það hefði aldrei hvarflað að mér að einn daginn, á þessum sama stað, myndu 90.000 stuðningsmenn Barcelona kalla nafnið mitt. Við höfum farið lengra með kvennaliðið en við hefðum getað ímyndað okkur.“
Spænski boltinn Enski boltinn FC Barcelona Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira