Sport

Vann Stera­leikana en hefði endað síðastur á Ólympíu­leikunum

Aron Guðmundsson skrifar
Fred Kerley í hlaupi næturinnar
Fred Kerley í hlaupi næturinnar Vísir/Getty

Hlauparinn Fred Kerley, sem talaði digurbarkalega um heimsmet Usain Bolt í hundrað metra hlaupi, vann greinina á Steraleikunum en hefði endað í síðasta sæti í úrslitahlaupinu á síðustu Ólympíuleikum.

Kerley hélt því staðfastlega fram í aðdraganda Steraleikanna að hlaupið yrði á tíma í hundrað metra hlaupi karla sem væri betri en ríkjandi heimsmet Usain Bolt upp á 9,58 sekúndur. 

Þrátt fyrir að hlaupararnir væru á frammistöðubætandi efnum og hafi ekki þurft að gangast undir lyfjapróf komust þeir ekki nálægt heimsmeti Usain Bolt í hundrað metra hlaupi sem þurfti að ræsa fjórum sinnum út í.

Téður Kerley, sem talaði digurbarkalega fyrir leikana og segist hafa keppt sem íþróttamaður án frammistöðubætandi efna, vann vissulega hundrað metra hlaupið, en var á tíma sem hefði skilað honum síðasta sæti í úrslitahlaupi greinarinnar á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Tími Kerley var rétt undir tíu sekúndunum, nánar tiltekið 9,97 sekúndur.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit skipuleggjenda Steraleikanna um að hvert heimsmetið á fætur öðru myndi falla, sem hefði þó ekki talist gilt sökum frammistöðubætandi efnanna, var aðeins einn keppandi á leikunum sem kláraði á tíma undir ríkjandi heimsmeti í sinni grein. 

Það gerði Grikkinn Kristian Gkolomeev í 50 metra sundi með frjálsri aðferð. Fékk hann að launum eina milljón Bandaríkjadala, því sem nemur rúmum 124 milljónum íslenskra króna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×