Fótbolti

Jón Dagur lagði upp í tapi gegn ný­liðunum

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jón Dagur gaf góða stoðsendingu en gat ekki fagnað sigri. 
Jón Dagur gaf góða stoðsendingu en gat ekki fagnað sigri.  Mynd: Brann

Eftir þrjá deildarsigra í röð tók hrinan enda hjá lærisveinum Freys Alexanderssonar. Brann tapaði 2-1 á útivelli gegn nýliðum Aalesund í 10. umferð norsku úrvalsdeildarinnar.

Gengið hefur verið upp og niður hjá Brann í upphafi tímabils og tapið í dag sýnir veikleikamerki hjá liðinu.

Því miður fyrir Jón Dag Þorsteinsson, sem gaf góða stoðsendingu sem leiddi til jöfnunarmarks.

Henrik Melland átti þá eftir að setja sigurmarkið fyrir Aalesund í uppbótartíma leiksins.

Kristall Máni Ingason var einnig í byrjunarliði Brann en komst ekki á blað. Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson voru ekki með vegna meiðsla.

Á sama tíma stóð Júlíus Mar Júlíusson vaktina í vörn Kristianstad í 2-1 sigri gegn Lilleström. Hrannar Snær Magnússon kom inn af varamannabekknum á 79. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×