Körfubolti

„Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert“

Siggeir Ævarsson skrifar
Emil Barja og rauða hafið í bakgrunni
Emil Barja og rauða hafið í bakgrunni vísir/Hulda Margrét

Emil Barja, þjálfari Hauka, sagði að hans lið hefði einfaldlega ekki haft nein svör gegn frábærum leik tveimur bestu leikmanna Njarðvíkur í kvöld.

„Bara eiginlega þessir tveir frábæru leikmenn hjá þeim, Dani og Brittany. Það er ekkert eðlilega erfitt að stoppa þær og öll okkar orka og tími fer í þessa tvo leikmenn. Þegar þær eru að spila svona þá veit ég ekki hvað maður getur gert. Þær eru frábærar.“

Haukar minnkuðu muninn í sjö stig fyrir hálfleik en misstu fljótt tökin á leiknum í 3. leikhluta, þegar áðurnefnd Dani fékk að leika nokkurn veginn lausum hala en hún skoraði alls 36 stig í kvöld.

„Dani skoraði einhver tíu stig í þriðja og þegar við fórum að hjálpa aðeins meira þá settu hinar þristana í hornunum. Þær bara voru frábærar. Við vorum kannski að klúðra nokkrum reglum og svona en bara mikið mikið hrós á Njarðvík, þær voru virkilega góðar.“

Emil var beðinn um að líta til baka á þessa viðureign og viðurkenndi að hann væri ekki ánægður með frammistöðu síns liðs.

„Bara frekar mikil vonbrigði. Sérstaklega fyrstu tveir leikirnir. Við fannst við ekki nógu góðar þar. Ekki sýna hvað við getum gert og höfum verið að gera. Þriðji leikurinn var flottur og ég hélt að við myndum halda áfram með það en þær bara vildu þetta meira núna.“

Andri Már spurði Emil að lokum hvort hann yrði áfram með liðið sem hann útilokaði alls ekki.

„Bara veit það ekki. Bara kemur í ljós. Við skoðum þetta, ég sést niður með stjórninni og við förum yfir málið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×