Segir NBA Europe vera frábært tækifæri fyrir körfubolta Andri Broddason skrifar 15. maí 2026 16:01 Jorge Garbajosa í viðtali vegna stjórnarþings FIBA Europe Vísir/Lýður Forseti FIBA Europe hlakkar til að takast á við að innleiða nýja keppni í Evrópu. Keppnin þarf þó að virða deildir innan Evrópu og keppnir landsliða.
FIBA Europe heldur stjórnarþing á Grand Hotel núna um helgina þar sem verið er að ræða bæði evrópskan og alþjóðlegan körfubolta. „Ég er mjög ánægður að vera kominn hingað til Íslands,“ segir forseti FIBA Europe, Jorge Garbajosa, og er spenntur að skoða landið þess á milli að hann situr fundi stjórnarþingsins. Klippa: Forseti FIBA Europe á Íslandi Garbajosa hefur tengingu við Ísland þar sem hann er gamall liðsfélagi Pavels Ermolinski. „Hann er frábær leikmaður. Ég fylgdist með honum þegar hann spilaði í Eurobasket með Íslandi árið 2015. Það var gaman að fylgjast með íslensku leikmönnunum og stuðningsmönnunum á því móti.“ Garbajosa segir árangur Íslands á stórmótum síðan þá hafa verið mjög góður. „Það sem mér finnst mest spennandi núna er kvennakörfuboltinn,“ segir Garbajosa og nefnir að leikmenn og félög séu tilbúin að skuldbinda sig ásamt alþjóða körfuknattleikssamböndum til að stækka þann hluta íþróttarinnar. Garbajosa segir að miklar breytingar séu á landslagi körfubolta í Evrópu og þeir þurfi að aðlagast þeim breytingum. Tillaga um að stofna nýja deild tengda NBA sem nefnist „NBA Europe“ er mjög spennandi hugmynd og getur stækkað körfubolta í Evrópu. „Við erum með frekar skýrar kröfur ef það á að halda aðra keppni í Evrópu sem eru aðallega að virða landsliðsdagatalið og að félagslið fái tækifæri til að keppa um keppnisrétt í Evrópudeildum innan síns lands.“
KKÍ Körfubolti Mest lesið Slóst eftir leik og var rekinn út af: „Viðbrögðin í leikslok voru hræðileg“ Fótbolti Þekkt hnefaleikakona látin aðeins 26 ára gömul Sport Kevin Keegan látinn Enski boltinn Tove nýtti tímann sinn á Íslandi til hins ítrasta Sport Messi felldi tár í leikslok: „Enginn draumaendir“ Fótbolti Þrettán ára drengur lést í fagnaðarlátum á Spáni Fótbolti Gætu misst bæði Messi og landsliðsþjálfarann sinn Fótbolti Guardiola hafði rétt fyrir sér um Rodri Fótbolti Spánverjar heimsmeistarar Fótbolti Íslenska víkingaklappið lifir: FH-strákarnir unnu Gothia Cup Sport Fleiri fréttir Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM Sjá meira