PCOS verður PMOS: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni ei meir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. maí 2026 08:45 Talið er að ein af hverjum átta til tíu konum sé með PCOS, margar án þess að vita það. Getty Hópur sérfræðinga hefur ákveðið að það sem áður var kallað „polycystic ovary syndrome“ verði hér eftir kallað „polyendocrine metabolic ovarian syndrome“. Heilkennið, sem margar konur kannast við, verður þannig hér eftir PMOS í stað PCOS.
Tilkynnt var um breytinguna í grein í tímaritinu Lancet en hún er sögð niðurstaða margra ára samráðs. Nýja nafnið þykir réttara, segja sérfræðingar, þar sem ekki er um neinar eiginlegar „blöðrur“ (e. cysts) að ræða. Leiða má líkur að því að finna þurfi nýtt íslenskt heiti á heilkennið í kjölfarið en hingað til hefur verið talað um „fjölblöðrueggjastokkaheilkenni“. Ástæðan fyrir þeirri nafngift er talin sú að rannasakendur hafi upphaflega tekið eftir blöðrum (e. cysts) í eggjastokkunum en „blöðrurnar“ eru ekki eiginlegar blöðrur heldur sekkir sem innihalda egg. Einkenni PMOS eru meðal annars mjög óreglulegar blæðingar, mikill hárvöxtur á líkamanum og stundum hárlos, og sú staðreynd að umræddir sekkir hætta stundum að þroskast og losa þannig ekkert egg. Orsök einkennanna er hormónaójafnvægi og offramleiðsla testosteróns, sem meðal annars má rekja til mikils magns insúlíns í blóðinu. PMOS er í raun innkirtlasjúkdómur, sem erfist oft kynslóða á milli. Vonir standa til að nýja heitið muni leiða til aukins skilnings og bættra meðferða en PMOS getur meðal annars valdið ófrjósemi og dregið úr lífsgæðum. Meðal meðferða eru lífstílsbreytingar, lyf á borð við Metformin og hormónagetnaðarvarnir til að koma reglu á tíðahringinn og draga úr hárvexti.
Heilbrigðismál Heilsa Kvenheilsa Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira