Í hóp með Zlatan og Larsson en fer ekki á HM Valur Páll Eiríksson skrifar 12. maí 2026 20:15 Bardghji fór í hóp með Zlatan og Larsson á dögunum en kemst ekki í þann hóp sem fer á HM í sumar. Samsett/Getty Graham Potter hefur opinberað 26 manna leikmannahóp Svía sem fer á HM karla í fótbolta í Norður-Ameríku í sumar. Einhverjir hafa áhyggjur af skorti á sköpunarkrafti í sænska hópnum.
Dejan Kulusevski, leikmaður Tottenham, er ekki í leikmannahópnum þar sem hann tapaði kapphlaupi við tímann. Hann hefur verið meiddur nánast alla leiktíðina og nær sér ekki góðum fyrir komandi mót. Graham Potter opinberaði hópinn í dag.EPA/SALVATORE DI NOLFI Potter segir erfitt að hafa skilið Kulusevski utan hópsins. Flest önnur stór nöfn eru í leikmannahópi Svía, þar á meðal Alexander Isak, framherji Liverpool, sem hefur einnig átt meiðslahrjáða leiktíð. „Við vonum augljóslega að hann ljúki leiktíðinni með því að spila nokkra leiki fyrir Liverpool. Okkar áskorun er að koma honum í sem best stand fyrir mótið, vegna þess að Isak í toppstandi er heimsklassa leikmaður,“ sagði Potter um Isak í dag. Í ljósi þess að Kulusevski missir af mótinu hafa einhverjir kallað eftir því að Roony Bardgjhi, leikmaður Barcelona, fái kallið. Bardghji varð um helgina spænskur meistari með Barcelona og er aðeins þriðji Svíinn til að vinna spænska meistaratitilinn á þessari öld. Hann fylgir í fótspor Henrik Larsson og Zlatan Ibrahimovic sem unnu titilinn einnig með Barcelona. Hann spilar hins vegar ekki með þeim sænsku á mótinu. Heyrst hafa áhyggjur af skorti á skapandi leikmönnum í liðinu. John Guidetti, fyrrum framherji sænska landsliðsins, gagnrýnir valið harðlega. „Ég átta mig ekki á þessu. Þú getur ekki fengið leikmann sem spilar í þýsku B-deildinni í staðinn fyrir einhvern sem var að vinna La Liga með Barcelona,“ segir Guidetti og vísar til þess að Alexander Bernhardsson, leikmaður Holstein Kiel, sé í hópnum. „Mér finnst þetta vera huglaust val,“ sagði Guidetti enn fremur. Leikmannahópur Svíþjóðar á HM: Markverðir: Viktor Johansson (Stoke City), Kristoffer Nordfeldt (AIK), Jacob Widell Zetterström (Derby County). Varnarmenn: Hjalmar Ekdal (Burnley), Gabriel Gudmundsson (Leeds United), Isak Hien (Atalanta), Emil Holm (Juventus), Gustaf Lagerbielke (Braga), Victor Lindelöf (Aston Villa), Erik Smith (St. Pauli), Carl Starfelt (Celta Vigo), Elliot Stroud (Mjallby), Daniel Svensson (Borussia Dortmund). Miðjumenn: Taha Ali (Malmö), Yasin Ayari (Brighton), Lucas Bergvall (Tottenham), Jesper Karlström (Udinese), Ken Sema (Pafos), Mattias Svanberg (Wolfsburg), Besfort Zeneli (Union St-Gilloise). Framherjar: Alexander Bernhardsson (Holstein Kiel), Anthony Elanga (Newcastle United), Viktor Gyökeres (Arsenal), Alexander Isak (Liverpool), Gustaf Nilsson (Club Brugge), Benjamin Nygren (Celtic).
HM 2026 í fótbolta Sænski boltinn Svíþjóð Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Leik lokið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira