Eina sem mun gerast Strax er að Sjálfstæðisflokkur ætlar að selja eignirnar ykkar Þórður Snær Júlíusson skrifar 12. maí 2026 07:03 Ég hef búið í Reykjavík mestan part minnar ævi. Ég hef séð borgina þróast úr því að vera eins konar sveit þar sem gæðum var skammtað og hagsmunir bíla voru alltaf settir ofar mannvænu samfélagi við skipulag í að vera alvöru höfuðborg á heimsmælikvarða, troðfulla af gæðum og þjónandi stjórnsýslu. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þótt miklum vexti fylgi vaxtaverkir og óhjákvæmilega séu einstaka mistök gerð þegar reynt er að hlaupa hratt en vanda sig um leið þá er niðurstaðan sú að Reykjavík dagsins í dag er frábær borg sem hefur batnað stórkostlega á síðustu þremur áratugum og hefur allar forsendur til að halda hratt áfram á þeirri vegferð. Það er því dapurlegt í aðdraganda borgarstjórnarkosninga að ýmis framboð, sérstaklega á hægri kantinum, láti eins og höfuðborg landsins brenni. Að hér sé rekstur, þjónusta, skipulag og flest annað sem hönd er á festandi í kaldakolum. Að eina leiðin til að lagfæra þetta allt sé að rífa upp sáttmála sem tryggir stærstu fjárfestingu í samgöngum inn á höfuðborgarsvæðið í sögunni, og unnið hefur verið að í öllu skipulagi árum saman. Afvegaleiðing frá meginmarkmiðinu Allt þetta gas sem hlaðið er í fyrir kosningar úr hægrinu um nauðsyn þess að vernda bílastæði á Suðurlandsbraut svo hægt sé að sækja ísskápa í raftækjaverslanir á fjölskyldubílnum sem rúma ekki slík tæki eða órökstuddar fullyrðingar um að Reykjavík, best rekna sveitarfélag höfuðborgarsvæðisins á nánast alla mælikvarða, sé korter í gjaldþrot er auðvitað lítið annað en afvegaleiðing. Slykja til að beina sjónum almennings frá þeirri kjarnastefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrst og síðast fyrir. Að selja eignirnar ykkar. Það þarf ekki annað en að lesa þær efnahagstillögur sem Sjálfstæðisflokkurinn á landsvísu kynnti sem nýja kjarnapersónuleika sinn fyrr á þessu ári og fela í sér leiðir til að selja flestar opinberar eignir á niðursettu verði til einkaaðila til að fjármagna skattalækkanir sem lenda aðallega í vösum ríkustu Íslendinganna. Þar á meðal eru fyrirtæki sem starfa á náttúrulegum einokunarmörkuðum. Mikilvægt skref í þeirri viðleitni er að komast í meirihluta í borgarstjórn eftir komandi helgi. Barlómurinn í málflutningi þeirra snýst meira og minna um að það eigi að reka borgina eins og fyrirtæki. En fyrirtæki eru rekin fyrst og síðast til að hagnast, þau geta valið viðskiptavini sína og hætt óarðbærri starfsemi þegar þeim hentar. Reykjavíkin sem ég elska er hins vegar samfélag, ekki fyrirtæki. Þar berum við öll ábyrgð hvert á öðru. Borgin velur ekki hverja hún þjónustar, heldur þjónustar hún alla. Hún getur ekki valið sér arðbær verkefni og sleppt öðrum, eins og að byggja skóla eða styðja við viðkvæma hópa. Þótt það eigi og megi alltaf sýna skilvirkni, kostnaðareftirlit, árangursmælingar og betri stjórnun þá má aldrei reka sveitarfélag þannig að markmiðið sé að hámarka hagnað og skera til þess niður í þjónustu sem þykir óarðbær. Þetta skilur jafnaðarfólk vel, en hægriflokkar alls ekki. Sjálfstæðisflokkur vill einkavæða orku Þetta er ekki bara einhver ályktun. Áform Sjálfstæðisflokksins, komist hann til valda í Reykjavík, eru tiltekin í stefnuskrá flokksins. Hann ætlar að selja mikilvæg fyrirtæki úr samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur og vert er að minna á að á landsvísu hefur Sjálfstæðisflokkurinn boðað að selja stóra hluti í Rarik og Landsneti. Formaður flokksins sagði fyrir örfáum árum að hún teldi rétt að íslenska ríkið myndi selja 30-40 prósenta hlut í Landsvirkjun. Það er sama Landsvirkjun og Sjálfstæðisflokkurinn hafði forgöngu um að selja úr eignasafni borgarinnar á tombóluverði síðast þegar flokkurinn stýrði Reykjavík. Áhrifafólk í hægrinu hefur auk þess verið skýrt með þá skoðun sína að tímabært sé að einkavæða veitufyrirtæki borgarbúa. Það er alveg skýrt að Sjálfstæðisflokkurinn hefur mestan áhuga á að breyta mikilvægustu innviðafyrirtækjum okkar í einkarekin gróðafyrirtæki með þeim afleiðingum að verð mun hækka, hagnaður fer til fárra einkaaðila í stað þess að fara í samfélagslega uppbyggingu og yfirráð yfir nauðsynlegri fjárfestingu og hvert orka er seld fer frá fulltrúum almennings til fulltrúa sérhagsmuna. Fáir þurfa að fá að græða á öllu Þetta er ekki einungis bundið við orku. Sjálfstæðisflokkurinn vill koma stærri hluta heilbrigðisþjónustu, menntakerfi og samgöngukerfum í hendur hagnaðardrifinna einkaaðila og láta þá um að sinna þessari þjónustu að viðbættri arðsemiskröfu. Komist hann til valda í Reykjavík eftir komandi kosningar þá ætlar hann að leggja niður almenna íbúðarkerfið og selja mörg þúsund félagslegar íbúðir sem veita lágtekjufólki og viðkvæmum hópum þak yfir höfuðið, án þess að nokkuð komi í staðinn. Sjálfstæðisflokkurinn vill búa til markaðsvöru úr félagslegu öryggisneti. Flokkurinn vill selja bílastæðahús borgarinnar, sem kosta í dag einn þriðja eða einn fjórða af því sem kostar að leggja í slík hús í einkaeigu, til aðila sem vilja græða á útleigu bílastæða. Alls er um að ræða 1.144 bílastæði sem Sjálfstæðisflokkurinn vill selja. Svo vill flokkurinn auðvitað selja Malbikunarstöðina Höfða sem sér um flestar malbikunarframkvæmdir í Reykjavík, tryggir borginni besta mögulega verð og tryggir virka samkeppni á þeim markaði. Pólitík hinna fáu á kostnað allra hinna Það er ágætt að borgarbúar átti sig á þessu öllu saman áður en þeir ganga til kosninga á laugardag. Það eina sem mun gerast strax, komist Sjálfstæðisflokkur til valda, er að samfélagslegum gæðum sem eru að virka fyrir okkur verður breytt í markaðsvöru til að þjóna hugmyndafræðilegum kreddum og sérhagsmunum á kostnað lífsgæða borgarbúa. Þetta er pólitík hinna fáu á kostnað allra hinna, klædd í búning einhvers annars rétt á meðan atkvæðunum er smalað. Reykjavík er frábær. Þótt það sé alltaf eitthvað sem megi betur fara og að það megi alltaf takast á um hvernig forgangsraða eigi verkefnum þá eigum við hana saman og hún getur virkað fyrir okkur öll. Sá máttur hverfur ef hægrinu er hleypt óbeisluðu að valdinu til að selja öll helstu verðmætin okkar. Til þess að koma í veg fyrir það þarf sterkan jafnaðarflokk. Samfylkingin hefur sýnt það í verki að hún kann að fara með fjöreggin og stenst ásókn einkaaðila í þau. Þið getið sjálf sýnt skoðun ykkar á þessu með því að setja X við S á laugardag. Höfundur er íbúi í Reykjavík og framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar