Calvert-Lewin jafnaði og falldraugurinn enn á sveimi hjá Spurs Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2026 21:05 Mathys Tel skoraði og fékk á sig vítaspyrnu í leik Tottenham og Leeds United í kvöld. getty/James Gill Tottenham og Leeds United gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik 36. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Spurs er nú tveimur stigum frá fallsæti þegar tveimur umferðum er ólokið. Fyrir leikinn var ljóst að Tottenham kæmi sér í afar vænlega stöðu í fallbaráttunni með sigri í kvöld. Á meðan hafði Leeds ekki að neinu að keppa en eftir úrslit gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni var ljóst að strákarnir hans Daniels Farke væru hólpnir. Staðan var markalaus í hálfleik. Á 50. mínútu tók Pedro Porro hornspyrnu fyrir Tottenham. Boltinn barst til Mathys Tel við vítateigslínuna og hann sneri boltann laglega í fjærhornið. Eftir rúmlega sjötíu mínútna leik fékk Leeds vítaspyrnu eftir að Tel braut á Ethan Ampadu. Jarred Gillett dæmdi víti eftir að hafa skoðað atvikið á skjá við hliðarlínuna. Dominic Calvert-Lewin tók spyrnuna og skoraði af öryggi, sitt þrettánda mark í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Fleiri urðu mörkin ekki og liðin fengu hvort sitt stigið. Tottenham er áfram í 17. sæti deildarinnar, nú með 38 stig, tveimur stigum á undan West Ham United sem er í sætinu fyrir neðan. Tottenham á eftir að mæta Chelsea á útivelli og Everton á heimavelli. West Ham mætir hins vegar Newcastle United á heimavelli og Leeds á útivelli í síðustu tveimur umferðunum. Leeds, sem er taplaust í síðustu sjö deildarleikjum, er í 14. sæti með 44 stig. Enski boltinn Tottenham Hotspur Leeds United