Valgeir og félagar að bjarga sér með frábærum sigri Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 18:04 Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar eru ekki alveg hólpnir. Getty/Anke Waelischmiller Fortuna Düsseldorf kom í veg fyrir að Elversberg svo gott sem tryggði sér sæti í efstu deild Þýskalands í fótbolta í dag og kom sér um leið úr fallsæti fyrir lokaumferð 2. deildarinnar.
Valgeir Lunddal Friðriksson lék síðustu 35 mínúturnar í dag fyrir Fortuna, í 3-1 sigri. Liðið hefur með tveimur sigrum í síðustu þremur leikjum komið sér upp í 15. sæti af 18 liðum deildarinnar. Tvö neðstu liðin falla og þriðja neðsta liðið fer í umspil og því er sæti Fortuna ekki enn öruggt fyrir lokaumferðina um næstu helgi. Standings provided by Sofascore Fortuna er með 37 stig og fimm mörkum betri markatölu en Fürth sem situr í 17. sæti, fallsæti. Liðin mætast í lokaumferðinni eftir viku og Fürth þarf þar þriggja marka sigur til að komast upp fyrir Fortuna. Bielefeld er svo í 16. sæti með 36 stig og betri markatölu en Fortuna, og því ljóst að Fortuna þarf sigur til að vera öruggt um að sleppa við að fara í umspil. Ísak og félagar hólpnir þrátt fyrir tap Í efstu deildinni í Þýskalandi er sæti Kölnar, liðs Ísaks Bergmanns Jóhannessonar, orðið öruggt og 3-1 tapið gegn Heidenheim í dag breytti engu um það. Fyrir lokaumferðina er Köln í 14. sæti með 32 stig, sex stigum fyrir ofan Wolfsburg, Heidenheim og St. Pauli sem sitja í þremur neðstu sætunum eftir að Wolfsburg og St. Pauli töpuðu bæði í gær. Tvö þessara liða falla beint niður en liðið í 16. sæti, Wolfsburg sem stendur, fer í umspil við liðið í 3. sæti næstefstu deildar.
Þýski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira