Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Aron Guðmundsson skrifar 9. maí 2026 10:08 DeAndre Kane er klár í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar með liði sínu Grindavík. Þar mætir hann sínum gamla liðsfélaga, Dedrick Basile í liði Tindastóls. Vísir/Samsett DeAndre Kane, leikmaður Grindavíkur, er klár í baráttuna sem úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta verður þar sem að Grindavík og Tindastóll berjast um Íslandsmeistaratitilinn. Einvígið hefst í kvöld í Grindavík.
Kane, sem er algjör lykilmaður í liði Grindavíkur og einn besti leikmaður Bónus deildarinnar settist niður með Stefáni Árna Pálssyni í HS-orku höllinni í Grindavík og rýndi í stöðuna fyrir leik eitt. „Ég er fullur sjálfstrausts,“ byrjaði Kane svar sitt við fyrstu spurningu Stefáns og líklegast ekki oft, ef einhvern tímann, sem Kane hefur skort sjálfstraust. Klippa: DeAndre Kane fyrir fyrsta leik úrslitaeinvígisins „Við höfum unnið þetta lið áður. Við töpuðum fyrir þeim í Síkinu fyrr á tímabilinu en vorum ekki upp á okkar besta þar en unnum næstum því leikinn. Svo hér í Grindavík, án mín, Breka og fleiri leikmanna unnum við þá örugglega með yfir tuttugu stigum. Við vitum að Tindastóll er með gott lið. Þeir eru að spila á háu gæðastigi þessa stundina, eru vel þjálfaðir og með nokkra góða leikmenn. En ef við höldum áfram að standa okkur vel, sér í lagi í varnarleiknum, þá verður þetta allt í góðu fyrir okkur í þessu einvígi.“ Aðspurður um stöðuna á sér þegar að svona langt er liðið á úrslitakeppnina sagði Kane hana vera góða. „Eins og ég hef sagt við strákana. Nú er ekki tíminn til þess að kvarta undan einhverjum smávægilegum meiðslum. Þú verður að berjast í gegnum þau. Halda áfram að keyra á þetta.“ Með heimavallarréttinn Lið Grindavíkur vann deildarkeppni Bónus deildarinnar og er því með heimavallarrétt í úrslitaeinvíginu. En hversu mikilvægur er heimavallarrétturinnn að mati Kane? Það er ávallt frábær stemning í HS-orku höllinniVísir/Guðmundur Þórlaugarson „Mjög mikilvægur. Með því að taka leik eitt gefum við okkur tækifæri á því að halda í Síkið og reyna komast í 2-0. Fáum þá tækifæri á því að loka einvíginu næst þegar að við komum til Grindavíkur. Það er erfitt að spila við okkur hér. Fyrir Tindastól að þurfa að keyra hingað í yfir fjóra tíma og mæta okkur í leik sem spilaður er á háu tempói. Það er dálítið okkur í hag. Heimavallarrétturinn er gífurlega mikilvægur.“ „Basile er minn maður“ Í liði Tindastóls mætir Kane sínum gamla liðsfélaga, Dedrick Basile, en þeir spiluðu saman á fyrsta ári Kane hér á landi. „Það verður mjög gaman. Við spiluðum saman hér þegar að ég kom fyrst til Íslands. Við fórum alla leið í úrslitaeinvígið og töpuðum í oddaleik fyrir Val þar sem að Taiwo Badmus var að spila. Nú eru þeir saman í liði. Basile er minn maður. Frábær leikmaður sem hefur staðið sig vel fyrir félagið. Hann er búinn að vera frábær í úrslitakeppninni.“ Basile er frábær leikmaðurVísir/Pawel Vinskapurinn verður hins vegar lagður til hliðar í úrslitaeinvíginu. Kane er þekktur fyrir að reyna brjóta niður andstæðinga sína, ekki bara inn á vellinum með hæfileikum sínum í körfubolta. Heldur einnig í gegnum sálfræðistíl þar sem Kane getur verið að láta menn heyra það í tilraun sinni til þess að komast inn í hausinn á þeim. „Basile fær ekkert gefins hjá mér. Ég gæti talað smá skít við hann fyrir leik og á meðan að leik stendur. Það er bara það sem ég geri. Þannig er ég bara og það hjálpar mér við að ná mér í gang. Ef þörf er á mun ég klárlega tala minn skít við hann.“ Leikur eitt í úrslitaeinvígi Grindavíkur og Tindastóls hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld í HS-orku höllinni í Grindavík og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Upphitun fyrir leik með Stefáni Árna og sérfræðingum hans hefst klukkan hálf sjö.
Bónus-deild karla Grindavík Tindastóll Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Körfubolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira