Tvísýnt með þátttöku Kristals í úrslitaleiknum: „Búinn að vera stórkostlegur“ Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2026 10:32 Freyr Alexandersson er þjálfari Brann. Hann hefur verið ánægður með það hvernig Kristall máni hefur komið inn í hlutina hjá liðinu en því miður er hann tæpur fyrir úrslitaleik gegn Bodo/Glimt á laugardaginn. Vísir/Samsett Óvíst er hvort Kristall Máni Ingason, sem hefur farið á kostum með liði Brann í undanförnum leikjum, geti spilað úrslitaleik norska bikarsins gegn Bodø/Glimt á laugardaginn kemur vegna meiðsla. „
Því miður er hann tæpur fyrir úrslitaleikinn á laugardaginn,“ segir Freyr Alexandersson, þjálfari Brann í samtali við Vísi en það skýrist betur í dag hver staðan verður. „Hann fékk högg á fótinn í leiknum á móti Frederikstad og það er mjög tvísýnt hvort hann geti spilað á laugardaginn. Því miður, af því hann er í miklu flæði. En sjáum til. Það er ekki útilokað að hann geti tekið þátt.“ Það er möguleiki fyrir Brann að vinna sinn áttunda bikarmeistaratitil í sögunni og þann fyrsta undir stjórn Freys og ljóst að möguleg fjarvera Kristals myndi vera högg. Kristall hefur farið á kostum í undanförnum leikjum með Brann. Hann skoraði þrennu í toppslag á móti Tromsö og í næsta leik á eftir skoraði hann og lagði upp mark gegn Frederikstad. Fann taktinn og er í flæði Freyr er gríðarlega ánægður með drenginn sem gekk í raðir Brann undir lok janúar. „Kristall kemur inn í lið sem spilar allt öðruvísi fótbolta en hann hefur verið vanur að spila. Kemur inn í miklu meiri samkeppni. Hann þurfti bara að aðlagast aðeins en hefur verið með hlutverk hjá okkur allan tímann frá því að hann kom. Kristall er í framtíðarplönum okkar sem lykilmaður.“ Fjórir íslenskir leikmenn eru á mála hjá Brann þessa stundina. „Ég þurfti bara, alveg eins og ég gerði með Eggert Aron fyrir ári síðan, að finna réttan takt fyrir Kristal til að koma inn í hlutina. Það hefur tekist vel. Svo er hann búinn að vera stórkostlegur í síðustu þremur leikjum, skorað þessi mörk líka. Þau koma sem afleiðing þess að vera í takti með liðinu. Það er það sem við erum búnir að fá inn með honum.“ Rætt verður nánar við Frey um úrslitaleikinn gegn Bodo/Glimt á laugardaginn kemur í Sportpakkanum á Sýn í kvöld eftir kvöldfréttir.
Norski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Fleiri fréttir „stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Kláruðu leikinn með síðustu spyrnu leiksins Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Sjáðu mörkin: Norðmenn rúlluðu yfir Svía og glæsimark Isak „Öfundsýki alls staðar“ Sjá meira