Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri Sindri Sverrisson skrifar 7. maí 2026 08:30 Hvað þarf marga körfuboltamenn til að losa bolta? Skjáskot/NBA Áhorfendur í Madison Square Garden fögnuðu sínum manni vel í gærkvöld þegar Karl-Anthony Towns tók skúringamoppu af Andre Drummond, leikmanni Philadelphia 76ers, til þess að koma boltanum aftur í leik.
Towns og félagar í New York Knicks unnu 108-102 sigur í gær og eru því komnir í 2-0 í einvígi sínu við Philadelphia, í NBA-deildinni í körfubolta. Það vakti sömuleiðis mikla kátínu í höllinni þegar Towns kom til bjargar eftir að boltinn festist á bakvið aðra körfuna, þegar spennan var mikil í þriðja leikhluta. Drummond tók við moppu og reyndi ítrekað að losa boltann en án árangurs, á meðan að stuðningsmenn Knicks bauluðu. Þeir fögnuðu svo ákaft þegar Towns tók við moppunni og losaði boltann strax. KAT to the rescue 😂@RealChalamet was fired up after the NBA All-Star retrieved the ball! pic.twitter.com/El2MT0ks7t— NBA (@NBA) May 7, 2026 Leikurinn var afar spennandi og skiptust liðin á forystunni alls 25 sinnum, oftar en í nokkrum leik í úrslitakeppninni síðustu ellefu ár. Jalen Brunson fór fyrir Knicks og skoraði 26 stig, þar af átta í lokaleikhlutanum, og Towns skoraði 20 stig og tók 10 fráköst. Philadelphia var án Joel Embiid vegna meiðsla en Tyrese Maxey var stigahæstur í liðinu með 26 stig. Vonir standa til að Embiid geti spilað næsta leik, á föstudaginn. Wembanyama sterkur í stórsigri Í vesturdeildinni jöfnuðu San Antonio Spurs einvígi sitt við Minnesota Timberwolves, 1-1, með algjörum stórsigri, 133-95. Victor Wembanyama var að vanda í aðalhlutverki en hann skoraði 19 stig og tók 15 fráköst fyrir Spurs sem að héldu Minnesota í 35 stigum í fyrri hálfleik og voru 59-35 yfir að honum loknum.
NBA Mest lesið Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Handbolti Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Golf Synti yfir Eystrasaltið í 56 tíma án þess að stoppa Sport Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Íslenski boltinn Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum Sjá meira