Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Kristján Már Unnarsson skrifar 6. maí 2026 21:25 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Sigurjón Ólason Ráðamenn Icelandair tilkynntu í dag að flugáætlun félagsins yrði skorin niður um fimm prósent í haust vegna stórhækkunar eldsneytisverðs. Samhliða skoða þeir alvarlega að hætta rekstri Boeing 757-véla félagsins eftir sumarið.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar en flugfélög um allan heim hafa verið að bregðast við breyttu efnahagsumhverfi með fækkun flugferða. Og einnig hér á landi. „Við skárum niður um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi frá því sem við höfðum áætlað upphaflega. Og núna í morgun vorum við að segja frá því að í haust erum við að skera niður framboð um tæplega fimm prósent,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Farmur svona trukka hefur hækkað verulega í verði.Egill Aðalsteinsson „Eldsneytisverð hefur hækkað mjög mikið, nánast tvöfaldast frá því að átökin hófust í Mið-Austurlöndum. Þó að það hafi verið lækkun í morgun, það er mikil hreyfing á þessu,“ segir Bogi. Áfangastöðum Icelandair verður þó ekki fækkað heldur verður dregið úr ferðatíðni, en mismikið eftir stöðum. „Hlutfallslega er þetta meira til Norður-Ameríku, eitthvað til Evrópu líka. Þannig að þetta svona dreifist aðeins á leiðakerfið og við erum að gera þetta með góðum fyrirvara núna.“ En félagið er einnig að skoða að hraða breytingum á flugflotanum, að láta gömlu 757-þoturnar víkja fyrr fyrir nýjum Airbus þotum. Icelandair hafði áður boðað að síðustu 757-þoturnar yrðu teknar úr rekstri eftir sumarið 2027 og 767-breiðþoturnar í byrjun árs 2027. „Sú áætlun er óbreytt varðandi 767 en við erum að skoða hvort að við flýtum útfösun á þessum síðustu 757 og hættum jafnvel með þær núna í haust en sú ákvörðun liggur ekki fyrir. Þar erum við fyrst og fremst að horfa til þess að eldsneytisverð er mjög hátt og þessar vélar, þó að þær séu frábærar, þá nota þær miklu meira eldsneyti heldur en nýju vélarnar okkar. Þannig að þetta er eitthvað sem við erum að skoða mjög alvarlega núna.“ Boeing 757-þoturnar hafa verið í þjónustu Icelandair í 36 ár, lengur en nokkur önnur flugvélartegund.Egill Aðalsteinsson Nýju Airbus vélarnar eyða þrjátíu prósentum minna eldsneyti á hvert sæti og þeim er að fjölga í flota Icelandair. „Þær verða sex í rekstri núna í sumar. Við ætluðum að hafa sjö en það er ein sem er í seinkun frá Airbus. Við leysum það með því að leigja inn vél í staðinn og síðan koma fleiri vélar inn fyrir sumarið 2027,“ segir forstjóri Icelandair. Fyrsta Airbus A321 LR-þota Icelandair í flugskýli félagsins á Keflavíkurflugvelli.Egill Aðalsteinsson
Icelandair Fréttir af flugi Boeing Airbus Tengdar fréttir Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. 10. maí 2025 22:11 Airbus var lengi búið að ganga á eftir Icelandair Tímamót urðu í sögu Icelandair þegar félagið fékk afhenta sína fyrstu Airbus-þotu undir lok síðasta árs. Aldrei fyrr hafði það gerst í sögu þessa stærsta flugfélags Íslendinga að það keypti nýja farþegaþotu frá öðrum framleiðanda en Boeing. 3. apríl 2025 20:40 Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Sjá meira
Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. 10. maí 2025 22:11
Airbus var lengi búið að ganga á eftir Icelandair Tímamót urðu í sögu Icelandair þegar félagið fékk afhenta sína fyrstu Airbus-þotu undir lok síðasta árs. Aldrei fyrr hafði það gerst í sögu þessa stærsta flugfélags Íslendinga að það keypti nýja farþegaþotu frá öðrum framleiðanda en Boeing. 3. apríl 2025 20:40
Arftaki 757-þotunnar ekki í boði frá Boeing Boeing-verksmiðjurnar hættu smíði 757-þotunnar árið 2004, þeirrar flugvélartegundar sem byggði upp Icelandair. Boeing hefur til þessa ekki getað boðið flugfélögum upp á annan valkost sem getur algerlega komið í staðinn fyrir 757-vélina. 30. mars 2025 14:30