Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Atli Ísleifsson skrifar 6. maí 2026 08:58 Birna María Sigurðardóttir og Gunnar Skúlason. Styrkás Gunnar Skúlason, sem gegnt hefur stöðu fjármálastjóra Styrkás, hefur verið ráðinn í nýja stöðu í framkvæmdastjórn samstæðunnar sem framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og samþættingar. Birna María Sigurðardóttir, löggiltur endurskoðandi, hefur verið ráðin sem fjármálastjóri Styrkás og mun taka sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar.
Í tilkynningu segir að Birna María hefji störf 1. júlí. Breytingarnar eru sagðar liður í undirbúningi fyrir frekari vöxt og fyrirhugaða skráningu á aðalmarkað kauphallarinnar. „Birna María Sigurðardóttir kemur til Styrkás frá Deloitte, þar sem hún hefur starfað í rúm 18 ár, þar af sem eigandi frá 2017. Undanfarin ár hefur hún gegnt stöðu framkvæmdastjóra rekstrar og fjármála hjá Deloitte. Hún hóf feril sinn á endurskoðunarsviði félagsins og tók síðar við sem sviðsstjóri Áhætturáðgjafar þar sem hún leiddi verkefni og frekari vöxt á sviði áhættustýringar, innri endurskoðunar og fjölbreyttrar ráðgjafar. Birna Maria er með M.Acc.-gráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá Háskóla Íslands, hlaut löggildingu sem endurskoðandi árið 2013 og lauk Advanced Management Program frá IESE viðskiptaháskólanum í Barcelona árið 2023. Birna María mun leiða áframhaldandi uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar og bera ábyrgð á fjárhagslegum undirbúningi skráningar í Kauphöll. Gunnar Skúlason – framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og samþættingar Gunnar Skúlason hefur gegnt stöðu fjármálastjóra hjá Styrkási og Kletti frá árinu 2023 og leitt uppbyggingu fjármálasviðs samstæðunnar. Hann starfaði áður sem sérfræðingur í viðskiptagreind hjá Skeljungi og ráðgjafarfyrirtækinu Expectus. Gunnar er með B.Sc.-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc.-gráðu í aðgerðarrannsóknum frá DTU í Danmörku.Í nýju hlutverki sínu verður Gunnar með áherslu á samþættingu dótturfélaga Styrkás og stjórnun verkefna tengdum innri og ytri vexti félagsins,“ segir í tilkynningunni. Styrkás hf. er rekstrarfélag stofnað árið 2022. Dótturfélög Styrkás eru Skeljungur, Klettur, Stólpi og Hreinsitækni, sem saman mynda samstæðu félagsins. Stefnt er að því að félagið verði skráð í aðalmarkað Kauphallar á öðrum ársfjórðungi 2027.
Vistaskipti Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira