Þorleifur: Ég verð ekki með liðið á næsta ári Árni Jóhannsson skrifar 5. maí 2026 21:55 Þorleifur Ólafsson verður ekki áfram með Grindavík. Anton Brink Annað árið í röð dettur Grindavík út í úrslitakeppninni eftir að hafa komist í 2-0 í einvígi. Þorleifur Ólafsson fór yfir ástæðurnar fyrir tapinu fyrir Njarðvík í kvöld og tilkynnti að hann yrði ekki með liðið á næsta ári.
Þjálfari Grindavíkur var að sjálfsögðu súr með útkomuna í kvöld þegar hann mætti til Andra Más Eggertssonar. Hvar fannst honum leikurinn fara í kvöld? „Bara í upphafi leiks. Þetta var eins og þriðji leikurinn. Njarðvíkingar byrjuðu af hörku og héldu þeim takti út fyrri hálfleikinn. Við svona náðum að hanga inn í þessu en þetta var of mikið og við mættum ekki nógu klárar í þetta.“ Klippa: Greindi frá starfslokum sínum í viðtali Grindavík var 13 stigum undir í hálfleik en komust yfir í þriðja leikhluta. Hvað gekk vel þar? „Við settum upp sóknir þar sem við vorum að ráðast á þær en svo þegar þær fóru að bregðast við því þá forum við að gera eitthvað allt annað. Það voru klárlega opnanir þó svo að þær voru að reyna að koma þeim í einn á einn sem virkar illa gegn Abbie. Ég tók leikhlé til að koma í veg fyrir að Njarðvík kæmist á sprett og teiknaði upp lausnir sem ég hélt að þær sæu ekki en hugsandi til baka þá vorum við of fljótar að fara út úr því sem var að virka.“ Svo kom fjórði leikhlutinn. Hvernig var að horfa upp á leikinn í fjórða leikhluta. „Svekkjandi. Það var erfitt að horfa upp á þetta. Maður vill ekki detta út, maður vill verða meistari og við vorum klárlega með lið í það. Svo kom maður inn í klefa eftir þetta og safnaði þeim saman til að þakka þeim fyrir tímabilið. Ég var samt svolítið mát hugsandi til baka en við erum búin að lenda í meiðslum og ótrúlegu veseni og það er bara rétt fyrir úrslitakeppni sem við erum allar mættar á æfingu og getum spilað 5 á 5. Ég tel það klárlega hafa áhrif í svona mikilvægum leik þar sem við þurfum að vera allar á sömu blaðsíðunni og þurftum að treysta á einstaklingsframtak sem var ekki að virka.“ Þorleifur var svo spurður að því hvernig tilfinningin væri að vera að detta út úr einvígi eftir að hafa komist í 2-0. „Ég hugsa að niðurstaðan sé bara að ég kunni ekki að vinna sem þjálfari. Það er ekki dýpra en það. Við vorum að tala um lausnir og liðið og ég leyfði þeim að hafa skoðanir á hlutunum og kannski eru það mistök sem ég gerði sem þjálfari en verandi kominn í 2-0 yfir þá er það fjórði leikhlutinn í fjórða leiknum þar sem við töpuðum einvíginu. Við skorum þrjú stig og erum litlar í okkur og hræddar. Það er ekki bara liðinu að kenna, þar er þjálfarinn stór partur af þessu. Ég hélt og reyndi að koma skilaboðum til þeirra og það var ekki nógu gott. Ef það er ástæðan þá tek ég það bara á kassann því þetta var ekki nógu gott þar sem við vorum komnar í 2-0.“ Þorleifur var því spurður að því hvort hann yrði með liðið áfram á næsta ári. „Ég verð ekki með liðið á næsta ári. Þetta er held ég komið gott. Það er nóg af öðrum hlutum sem ég þarf að einbeita mér að. Komið gott fyrir mig að vera kvennaþjálfari í Grindavík og kominn tími til að fá nýtt blóð inn.“ Hvernig gerir Þorleifur feril sinn upp sem þjálfari þegar ferlinum er lokið? „Í bili. Nú ætla ég að vera sjálfboðaliði fyrir Grindavík og ætla mér að vera besti sjálfboðaliðinn fyrir liðin og kannski reyna að ná inn einhverju fólki á kvennaleikina því það var ekki alveg nógu gott hjá okkur.“
Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Körfubolti Fleiri fréttir Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sjá meira