Fullkomnuðu endurkomuna og hentu Boston út Valur Páll Eiríksson skrifar 3. maí 2026 09:30 Joel Embiid og félagar fóru áfram á kostnað Celtics. Jaylen Brown reyndi sitt en hafði ekki erindi sem erfiði. Maddie Meyer/Getty Images Philadelphia 76ers komust í nótt áfram í undanúrslit Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta eftir sigur á Boston Celtics í oddaleik. Celtics urðu aðeins 14. liðið í sögunni til að falla úr keppni eftir að hafa leitt seríu 3-1.
Liðin tvö höfðu skipst á sigrum í fyrstu tveimur leikjum seríunnar í Boston en Celtics unnu næstu tvo leiki í Philadelphiu og allt stefndi í að þeir myndu koma sér áfram. Sixers unnu leik fimm í Boston og fylgdu því eftir með sigri heima fyrir í sjötta leiknum til að knýja fram oddaleik í TD Garden sem fram fór í nótt. Sixers létu kné fylgja kviði eftir tvo góða sigra í röð og byrjuðu leikinn betur. Þeir leiddu 32-19 eftir fyrsta leikhlutann og voru skrefi á undan stærstan part. Boston tókst að minnka muninn í eitt stig í tvígang í spennnadi fjórða leikhluta en tókst ekki að brúa bilið til fulls. Gestirnir voru sterkari á lokakaflanum og unnu 109-100 sigur til að komast áfram í undanúrslit þar sem Philadelphia mætir New York Knicks. Boston Celtics eru aðeins fjórtánda liðið í sögunni sem fellur úr keppni í úrslitakeppninni eftir að hafa leitt hana 3-1. Joel Embiid fór fyrir 76ers með 34 stig, tólf fráköst og sex stoðsendingar. Tyrese Maxey skoraði 30 stig, tók ellefu fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Hjá Celtics var Jaylen Brown með 33 stig en aðeins 44 prósent skotnýtingu og Derrick White með 26 stig en tæplega 35 prósent nýtingu.
NBA Mest lesið Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Körfubolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Íslenski boltinn Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti Íslenski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur Íslenski boltinn Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Íslenski boltinn Magnað mark dugði fyrir sigri Enski boltinn Fleiri fréttir Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sjá meira