Þegar pólitíska tilfinningarótið tætir niður gagnrýna hugsun og vanvirðir tjáningarfrelsið Sóley Sævarsdóttir Meyer skrifar 30. apríl 2026 08:02 Hugtakið hatursorðræða er oft notað í opinberri umræðu, en sjaldan útskýrt með skýrum hætti. Það er búið að vera athyglisvert að fylgjast með samfélagsmiðlum, þar sem spurt var hvort nútíma „hinsegin fáni“ væri viðeigandi á leik- og grunnskólum þar sem hann er nú orðinn fáni margra nýrra viðhorfa og væntinga til lífsins. Því er löngu orðin þörf á umræðu um hvar þessi fáni á erindi og hver mörk þessarar umræðu eru. Oft er því mætt með harðri viðspyrnu. Ég er ekki á móti hinsegin fánanum, frekar en mörgum öðrum fánum og táknum, heldur þeirri hugmyndafræði og þeim félagslega þrýstingi sem margir upplifa að hafi þróast í kringum hann. Áður fyrr var þetta ekki áberandi og því tel ég eðlilegt að spyrja: á slík hugmyndafræði heima í leik- og grunnskólum? Slík spurning er ekki árás á hinsegin börn, né gerir þau ósýnileg. Hún snýst um hvert hlutverk opinberra stofnana sé og hvaða skilaboðum og hvers konar menntun þær eiga að miðla. Í frjálsu lýðræðislegu samfélagi hlýtur að vera vettvangur fyrir slíka umræðu. Ef einfaldar spurningar leiða til opinberrar smánunar og hatursfullrar stimplunar, stöndum við frammi fyrir raunverulegri hættu á að þrengja að tjáningarfrelsinu, sem er varið í íslensku stjórnarskránni. Hver ákveður hvaða umræða er leyfileg? Jafnframt er rétt að velta fyrir sér hvernig við forgangsröðum í samfélaginu. Hvers vegna fá sum málefni mikinn sýnileika og stuðning á meðan önnur, eins og t.d. fíknivandi, geðraskanir, fatlanir og alvarlegir sjúkdómar, virðast síður fá athygli? Þetta er ekki gagnrýni á stuðning við hinsegin fólk heldur ákall eftir auðmýkt, jafnvægi og hófsamri umræðu. Margir upplifa að „hinsegin fáninn“ hafi þróast frá því að standa fyrst og fremst fyrir jafnan rétt í að tengjast víðtækari hugmyndafræði. Það er eðlilegt að ekki séu allir sammála þeirri þróun án þess að það jafngildi hatri. Getur fáni öðlast aðra merkingu en upp var lagt með þegar hann var sameiningartákn? Geta tákn verið misnotuð í þágu pólitískra samtaka mun fremur en til að berjast fyrir rétti manna? Ég hef einnig séð dæmi þar sem fólk, þar á meðal hinsegin einstaklingar, fær harkaleg viðbrögð fyrir að tjá ólíkar skoðanir. Það vekur spurningar um hvort við séum farin að svara ágreiningi með útilokun frekar en umræðu. Við erum ekki öll eins, fólk hefur ólíkar skoðanir. Þannig er fjölbreytt samfélag. Ísland er eitt umburðarlyndasta samfélag heims og það ber að varðveita. En ef við einblínum eingöngu á neikvæðar raddir gleymum við þeirri yfirgnæfandi samstöðu sem raunverulega er til staðar: að standa vörð um manneskjuna fremur en hugmyndafræði. Þetta snýst ekki um að taka skref aftur á bak eða draga úr réttindum. Þetta snýst um að tryggja að við getum átt í opinni, heiðarlegri og virðingarfullri samræðu. Það er forsenda heilbrigðs samfélags. Höfundur er lögfræðingur og móðir og skipar 4. sæti á lista Miðflokksins í Mosfellsbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Mosfellsbær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar