Körfubolti

Wembanyama varði skot yfir spjaldið og sendi Portland í sumar­frí

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Menn komast ekki svo auðveldlega að körfunni þegar Victor Wembanyama stendur í teignum.
Menn komast ekki svo auðveldlega að körfunni þegar Victor Wembanyama stendur í teignum. Ronald Cortes/Getty Images

Victor Wembanyama var allt í öllu er San Antonio Spurs unnu einvígi í NBA úrslitakeppninni í fyrsta sinn í níu ár.

Spurs unnu sannfærandi 114-95 sigur gegn Portland Trail Blazers í nótt eftir að hafa leitt mest með 28 stigum í leiknum. 4-1 sigur í einvíginu skaut Spurs áfram í undanúrslit vesturdeildarinnar en þangað hefur liðið ekki komist síðan árið 2017.

Wembanyama skilaði 17 stigum og 14 stoðsendingum á tölfræðiskýrsluna en varið skot hans undir lok fjórða leikhlutans vakti mesta athygli.

Deni Avdija reyndi að minnka muninn fyrir Portland Trail Blazers sem voru 15 stigum undir en Wembanyama varði skotið svo grimmilega að boltinn flaug yfir spjaldið og upp í stúku.

Meira að segja Félix Wembanyama, faðir Victors sem lætur sér vanalega fátt um finnast, gat ekki annað en rekið upp stór augu.

Geimveran er greinilega búin að jafna sig vel af höfuðhögginu sem hann fékk í leik tvö.

Í austurdeildinni var annar miðherji sem stal fyrirsögnum. Joel Embiid sneri aftur eftir botnlangatöku og skoraði 33 stig í 113-97 sigri Philadelphia 76ers gegn Boston Celtics.

76ers héldu sér á lífi með þessum sigri en eru 3-2 undir í seríunni. Celtics geta klárað einvígið á heimavelli í næsta leik en gera það væntanlega ekki ef þeir klikka á síðustu fjórtán skotum leiksins, eins og þeir gerðu í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×