Furstadæmin yfirgefa OPEC Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2026 13:24 Suhail Mohamed Al-Mazrouei, orkumálaráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, segir Sáda ekki hafa verið látna vita af ákvörðuninni fyrirfram. Getty/Maksim Konstantinov, SOPA Images Ráðamenn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lýstu því yfir í dag að ríkið ætlaði að yfirgefa samtök olíuútflutningsríkja eða OPEC-ríkin svokölluðu. Furstadæmin hafa lengi tilheyrt hópnum og er útlit fyrir að um þungt högg fyrir hann sé um að ræða, á sama tíma og olíuverð hefur hækkað verulega og markaðurinn er í mikilli óvissu vegna átakanna í Mið-Austurlöndum og lokunar Hormússunds.
Talið er að brottför furstadæmanna, sem á að eiga sér stað strax um mánaðamótin, gæti dregið úr mætti OPEC og aukið á óreiðu á olíumörkuðum, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Reuters hefur eftir Suhail Mohamed al-Mazrouei, orkumálaráðherra furstadæmanna, að ákvörðunin hafi verið tekin eftir ítarlega skoðun á orkustefnum annarra ríkja á svæðinu. Hann sagði ráðamenn furstadæmanna ekki hafa tekið þessa ákvörðun í samráði við konungsfjölskyldu Sádi-Arabíu, en Sádar eru óformlegir leiðtogar OPEC. Mazrouei sagði einnig að ólíklegt væri að ákvörðunin myndi hafa mikil áhrif á markaði, vegna lokunar Hormússunds. OPEC-ríkin eru Alsír, Angóla, Austur-Kongó, Ekvador, Gabon, Írak, Íran, Katar, Kúveit, Líbía, Miðbaugs-Gínea, Nígería, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Sádi-Arabía og Venesúela. Furstadæmin munu einnig yfirgefa OPEC+ hópinn en hann inniheldur mörg önnur ríki þar sem olíu er dælt úr jörðu. Þessi hópur var myndaður í Írak árið 1960 og af ráðamönnum í Íran, Írak, Kúveit, Sádi-Arabíu og Venesúela. Innan hópsins hafa ráðamenn OPEC-ríkjanna stillt saman strengi sína um hve mikla olíu á framleiða og þannig stýrt olíuverði. Furstadæmin gengu til liðs við OPEC árið 1967. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur lengi verið harðlega gagnrýninn á OPEC og sakað þessi ríki um að arðræna allan heiminn með því að halda olíuverði háu. Hann hefur einnig tengt stuðning Bandaríkjanna í varnarmálum við veru ríkja Mið-Austurlanda í OPEC en furstadæmin eru eitt helsta bandalagsríki Bandaríkjanna á svæðinu. Joe Biden var einnig gagnrýninn á OPEC. Sjá einnig: Heitir Sádum afleiðingum vegna skerðingar á olíuframleiðslu Ráðamenn í furstadæmunum hafa verið mjög gagnrýnir á önnur ríki á svæðinu fyrir að aðstoða þau lítið við að verjast árásum frá Íran á undanförnum mánuðum. Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa tapað verulega á lokun Hormússunds og Íranir hafa gert fjölmargar árásir yfir sundið á undanförnum vikum.AP Um fimmtungur allrar olíu heimsins hefur farið gegnum Hormússund en síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran, og byltingarvörður Íran lokaði sundinu, hefur dregið verulega úr því flæði. Mikið magn af jarðgasi og öðrum innviðum hefur einnig farið gegnum sundið. Furstadæmin eru innan Hormússund og hafa ekki getað flutt út eins mikið af olíu og gasi vegna lokunar þess.
Sameinuðu arabísku furstadæmin Bensín og olía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. 16. október 2024 15:33 Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Chuck Schumer og 22 aðrir öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins, hafa kallað eftir því að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna beiti öllum ráðum til að koma í veg fyrir verðsamráð í olíuiðnaði Bandaríkjanna. Þingmennirnir vilja að meint samráð verði rannsakað og forsvarsmenn fyrirtækja ákærðir, þyki tilefni til. 30. maí 2024 16:39 Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. 7. desember 2023 18:31 Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni. 6. október 2022 00:12 Mest lesið Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugmenn og Icelandair funda á morgun Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira
Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu. 16. október 2024 15:33
Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Chuck Schumer og 22 aðrir öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins, hafa kallað eftir því að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna beiti öllum ráðum til að koma í veg fyrir verðsamráð í olíuiðnaði Bandaríkjanna. Þingmennirnir vilja að meint samráð verði rannsakað og forsvarsmenn fyrirtækja ákærðir, þyki tilefni til. 30. maí 2024 16:39
Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. 7. desember 2023 18:31
Saka samtök olíuútflutningsfyrirtækja um að styðja Rússa OPEC+ samtök olíuútflutningsríkja ákváðu í dag að draga verulega úr olíuframleiðslu til að bregðast við lækkandi olíuverði. Áhrifin á heimshagkerfið eru talin mikil og búist er við hækkunum á olíuverði eftir langþráðar lækkanir síðustu vikur. Ákvörðunin er högg fyrir Joe Biden Bandaríkjaforseta sem segir ákvörðunina til marks um skammsýni og sakar samtökin um að styðja Rússa með ákvörðuninni. 6. október 2022 00:12