Olivia Smith tryggði Arsenal dramatískan sigur Aron Guðmundsson skrifar 26. apríl 2026 16:47 Olivia Smith fagnar marki sínu í dag Vísir/Getty Arsenal er 2-1 yfir í einvígi sínu gegn OL Lyonnes eftir fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar kvenna í fótbolta í dag. Olivia Smith skoraði sigurmark leiksins þegar að langt var liðið á seinni hálfleikinn.
Það voru gestirnir í liði OL Lyonnes frá Frakklandi sem komust yfir í leiknum með marki frá Julie Brand á átjándu mínútu og átti það eftir að reynast eina mark fyrri hálfleiksins. Leikurinn var spilaður á heimavelli Arsenal, Emirates leikvanginum og með góðan stuðning á bak við sig tókst Arsenal að ná inn jöfnunarmarki á 58.mínútu. Hrikaleg mistök Christiane Endler, markvarðar OL, urðu til þess að aukaspyrna Mariona Caldentey endaði í netinu og staðan því orðin jöfn 1-1. Þegar komið var fram á 83.mínútu leiksins skoraði Olivia Smith svo það sem átti eftir að reynast sigurmark leiksins er skot hennar frá miðjum vítateignum söng í hægra horni marknetsins. Lokatölur 2-1 sigur Arsenal sem heldur því með eins marks forystu inn í seinni leik liðanna í Frakklandi. Samanlögð úrslit úr þessum tveimur leikjum liðanna ráða því hvort liðið fer áfram í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Í hinu einvígi keppninnar stendur einvígi Bayern Munchen og Barcelona 1-1 eftir fyrri leik liðanna í Bæjaralandi í gær. Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Arsenal FC Mest lesið Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Íslenski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn City marði Coventry Enski boltinn Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Fleiri fréttir Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Sjá meira