„Til háborinnar fyrirmyndar og ég er ánægður með það“ Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 24. apríl 2026 22:18 Jóhann var ekki jafn ánægður hér og með stuðningsmenn Þróttar. Vísir/Vilhelm Þróttur tapaði gegn Breiðablik 2-0 á Kópavogsvelli í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna í kvöld. Íslandsmeistararnir reyndust því aðeins of stór biti fyrir gestina. „
Við gerðum mistök í báðum þessum mörkum en ég ætla nú ekki að fara að taka það af Blikunum að þær gera það sem þær gera mjög vel,“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar, eftir fyrsta leik tímabilsins. „Þú þarft að vera rosalega vakandi þegar þær koma boltanum svona oft inn fyrir þig og það getur alltaf eitthvað hættulegt gerst á þeim augnablikum. Við vorum bara klaufar í fjórum atvikum og þær hafa sennilega átt að enda með fjögur mörk.“ Jóhann var ánægður með margt en hefði viljað sjá liðið hrista mörkin af sér fyrr og gera betur sóknarlega. „Ég hef engar afsakanir í sjálfu sér fyrir okkur, við hefðum átt að gera betur. Við getum spilað betur heldur en þetta. Það jákvæða er að leikmenn missa aldrei trúna á það að þeir geti komið til baka, hvort sem að það er 40 mínútur á klukkunni, 75 eða 92.“ „Við erum bara búin að taka úr okkur hrollinn núna, við skulum bara segja það. En við töpuðum hér á mjög sterkum heimavelli Breiðabliks.“ Það var mætt vel í stúkuna á Kópavogsvelli hjá báðum liðum og það var svona alvöru fótboltasumar stemning. „Það er andi í liðinu okkar og ég verð eiginlega kannski að segja ofan á það, svona það jákvæðasta, það er mætingin hjá okkar fólki og stuðningurinn frá stuðningsfólki okkar í Þrótti. Hann var til háborinnar fyrirmyndar og ég er gríðarlega ánægður með það. Ég veit alveg hvað stelpurnar tala um inni í klefa núna, að þær ætla að þakka fyrir þetta í næsta leik.“
Þróttur Reykjavík Besta deild kvenna Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi í aðahlutverki í Meistaradeildinni Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Manchester City - PSG | Evrópumeistararnir heimsækja Manchester Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Heimir sagður á leið til ÍA og Martinez óð á súðum Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Eva bætti hvert metið á fætur öðru Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Bakgarðsáskorunin: Málgleðin helsti veikleikinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Lét gamminn geisa og fær að heyra það Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Dagskráin í dag: Liverpool, Man. City, PSG og Real í Meistaradeild Evrópu Sjá meira