Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Samúel Karl Ólason skrifar 22. apríl 2026 18:44 Frá fundinum í Grindavík í dag. Vísir/Sigurjón Grindvíkingar segja að þeim sé treystandi til að taka ákvarðanir um eigið líf. Þeir þakka landsmönnum og stjórnvöldum fyrir stuðninginn en krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi eðlilegrar endurreisnar bæjarins.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í ályktun almenns íbúafundar sem haldinn var um framtíð Grindavíkur í dag. Þar segir að stuðningur og umhyggja megi ekki snúast upp í forræðishyggju og Grindvíkingum sé treystandi til að taka ákvarðanir um framtíð bæjarins og eigið líf. Tvær kröfur til stjórnvalda eru í ályktuninni en sú fyrsta er að skólastarf verði tryggt í haust. Það að neita barnafjölskyldum sem vilji snúa aftur til Grindavíkur um grunnþjónustu jafngildi því að stöðva endurreisn bæjarins. „Rök um að skólastarf sé of hættulegt standast ekki. Börn dvelja nú þegar í bænum og öryggi þeirra er betur tryggt í skipulögðu skólastarfi en í frítíma. Stærsta áfall barnanna í Grindavík er að hafa misst tengslanet og vini. Að dæma þau til óvissu í heilt ár í viðbót er óásættanlegt.“ Fundurinn var meðal annars sóttur af þingmönnum af svæðinu.Vísir/Sigurjón Hin krafan snýst um að jafnræði verði tryggt í húsnæðismálum. Forsvarsmenn Fasteignafélagsins Þórkötlu muni ekki gera upp á milli íbúa eftir fjölskyldugerð. „Öllum fyrrverandi eigendum húsnæðis í Grindavík verður að gera það kleift að flytja aftur í sín hús, kjósi þeir það og það ferli má ekki draga á langinn.“ Þá skora íbúar á ríkisstjórn og þingmenn Suðurkjördæmis að hlusta á þá og vinna með þeim en ekki gegn þeim. „Þá fyrst getur endurreisn samfélagsins í Grindavík hafist fyrir alvöru.“
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Knapi datt af baki Innlent Fleiri fréttir Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Sjá meira