Tilkynna lögreglu um „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð Valur Páll Eiríksson skrifar 20. apríl 2026 10:30 Roberto De Zerbi, þjálfari Tottenham, hughreystir Danso eftir mistök hans í jafntefli helgarinnar. Danso hefur orðið fyrir kynþáttaníði á samfélagsmiðlum eftir leikinn. Marc Atkins/Getty Images Tottenham hefur tilkynnt kynþáttaníð í garð austurríska varnarmannsins Kevin Danso til lögreglu. Félagið fordæmir fordómana sem Danso hefur orðið fyrir eftir 2-2 jafntefli liðsins við Brighton um helgina.
Danso gerði mistök í jöfnunarmarki Georginio Rutter undir lok leiks sem kostaði Tottenham tvö dýrkeypt stig í fallbaráttunni. Tottenham situr í fallsæti og leiddi 2-1 þegar Rutter kom Brighton til bjargar í blálok leiks. Danso hefur orðið fyrir miklu aðkasti á samfélagsmiðlum eftir mistök sín og margt af því aðkasti beinist að húðlit Austurríkismannsins. Tottenham fordæmir „viðurstyggilegt og afmennskandi“ kynþáttaníð sem hann hefur orðið fyrir undanfarna daga. „Eftir leik gærdagsins við Brighton, sem átti sér stað á No Room for Racism helgi ensku úrvalsdeildarinnar, hefur Kevin Danso orðið fyrir og verður enn fyrir töluverðu og andstyggilegu kynþáttaníði á samfélagsmiðlum „Við höfum heyrt og séð viðurstyggilegt og afmennskandi kynþáttaníð. Slík hegðun er án vafa lögbrot og glæpsamleg hegðun. Við þetta verður ekki unað,“ segir í yfirlýsingu frá Tottenham. No Room for Racism er baráttuverkefni ensku úrvalsdeildarinnar gegn kynþáttaníði. View this post on Instagram A post shared by Kevin Danso (@kevin.danso) Þar segir enn fremur að öll tilvik kynþáttaníðs hafi verið tilkynnt til lögreglu og yfirvalda í erlendum ríkjum, í þeim tilfellum þar sem aðilar utan Bretlands hafi beitt Danso slíku níði. Tottenham situr í átjánda sæti deildarinnar, efsta fallsætinu, með 31 stig. Spurs er einu stigi frá West Ham United sem er í neðsta örugga sætinu, því sautjánda, en West Ham á inni leik við Crystal Palace í kvöld. Leikur Crystal Palace og West Ham er klukkan sjö í kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Tottenham Hotspur Kynþáttafordómar Enski boltinn Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira