„Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Stefán Árni Pálsson skrifar 16. apríl 2026 13:00 Margrét opnar sig um þá fordóma sem dóttir hennar verður fyrir. Margrét Vera Mánadóttir er móðir þriggja barna, og á dóttur sem lendir í fordómum vegna litarháttar. Sindri Sindrason ræddi við Margréti í Íslandi í dag í gærkvöldi og fékk að heyra sögu fjölskyldunnar. „
Auðvitað býst maður alltaf við því þegar maður er óléttur með manni frá öðru landi að það verði eitthvað í framtíðinni, en þetta verður svona fyrst þegar hún er í leikskóla og á síðasta árinu, þá fer maður svona virkilega að taka eftir þessu,“ segir Margrét og heldur áfram. „Þetta er orðið miklu alvarlegra þegar hún er komin í grunnskóla og mér finnst þetta hafa orðið meira. Þetta eru náttúrulega bara fyrst og fremst ljót orð í hennar garð. Það er verið að kalla hana n-orðinu. Það er verið að setja út á útlitið hennar, þú ert með krullur, líka talað mikið um eftirnafnið hennar, að það sé ljótt,“ en faðir hennar er frá Gana. Hefur gríðarleg áhrif „Hún náttúrulega upplifir sig sem öðruvísi. Þetta hefur mikil áhrif á sjálfsmyndina hennar og hún talar mikið um að hana langi að vera eins og hinir. Þetta hefur gríðarleg áhrif. Hún hefur komið heim virkilega döpur. Hún hefur stundum ekki viljað segja okkur hvað er að gerast. Stundum kemur þetta bara upp allt í einu, eins og þegar ég komst að því að einhver væri að kalla hana n-orðinu og þá var hún að spyrja með hvað það orð þýddi. Þá komst ég að því að einhver væri að segja þetta við hana.“ Margrét segist oft á tíðum verða mjög reið. „Að sjálfsögðu hef ég samband við foreldrana og tala við þau fyrst og fremst af því að þetta byrjar allt heima og fæ þau til þess að fræða aðeins börnin sín um hvað er rétt og hvað er rangt. Þau fæðast ekki með fordóma. Þau heyra þetta einhvers staðar frá, hvort sem það er inni á heimilunum, á samfélagsmiðlum eða í skólanum. Meginmálið er svolítið svona hvað gerist inni á heimilinu og hvað ert þú að segja við börnin þín? Hvað ert þú að kenna börnunum þínum?,“ segir Margrét en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.
Ísland í dag Kynþáttafordómar Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira