Snorri Steinn Guðjónsson hefur skrifað undir nýjan samning sem landsliðsþjálfari Íslands til ársins 2032. Aðstoðarþjálfari hans fer sömu leið í samningi sem teygir sig yfir stórar vörður á mikilvægu tímabili fyrir íslenska landsliðið. „Þetta hékk aldrei á bláþræði,“ segir Snorri um viðræðurnar við HSÍ. „Það var aldrei spurning um að ég vildi halda áfram og ég fann fyrir miklum vilja frá HSÍ. Eins og eðlilegt er þegar gerður er langur samningur þá er margt sem þarf að fara yfir. Það var ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta.“ Áhuginn var þó svo sannarlega til staðar frá lands- og félagsliðum erlendis frá á bæði Snorra og Arnóri Atlasyni, aðstoðarþjálfara hans, sem landsliðsþjálfarinn lagði mikla áherslu á að halda Var það ófrávíkjanleg krafa af þinni hálfu að Arnór yrði áfram þér við hlið í þessu? „Ég lagði mikla áherslu á það. Við Arnór erum mjög samstíga og ég vissi svo sem líka alveg í hvaða ferli það var. Ég var aldrei mjög óttasleginn að missa minn mann. Auðvitað er erfitt að gera einhverja körfu á það. Við vorum í þessu saman og það var mikið áhersluatriði að hann yrði áfram með mér. Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason. vísir / vilhelm Hefur mikla trú á framtíðinni Snorri er þakklátur fyrir traustið sem honum er sýnt með svona löngum samningi. Ekki er verið að tjalda til einnar nætur. Samningurinn nær yfir fjöldamörg stórmót, þar á meðal tvo ólympíuleika og heimsmeistaramót hér á Íslandi 2031. Þá er stefnan sett á að styrkja starfið í kringum framtíðar landsliðsmenn Íslands. „Ég geri mér grein fyrir því að það er mikil ábyrgð sem fylgir þessu. Ef ég tala út frá sjálfum mér þá myndi ég aldrei taka að mér svona verkefni nema að ég hefði sjálfur mestu trúna á því. Ég hef alveg gríðarlega mikla trú á liðinu sem ég er með í höndunum í dag. Ég hef mikla trú á framtíð íslensks handbolta og sé marga unga og efnilega leikmenn sem eiga framtíðina fyrir sér. Lykilforsenda í þessu öllu var náttúrulega að ég hefði trú á þessu og trú á sjálfum mér. Að ég gæti gert þetta verkefni almennilega.“ Strákarnir okkar á EM í upphafi ársvísir/Vilhelm Klásúlur er varða félagslið Bæði HSÍ og Snorri eru með belti og axlabönd í viðræðunum. Klásúlur til að bregðast við hvers konar aðstæðum sem kunna að koma upp. Til að mynda ef félagslið er á höttunum á eftir Snorra. „Það er eitthvað opið. Þegar að þú gerir svona langan samning held ég að það sé mjög eðlilegt að báðir aðilar vilji hafa einhverjar klásúlur. Hvernig þær nákvæmlega eru held ég að sé bara fínt að sé á milli mín og HSÍ. Góðum árangri fylgir áhugi og athygliVísir/Vilhelm Ég nálgast þetta frekar af ákveðinni auðmýkt. Ég geri mér grein fyrir því að ég er bundinn af því að ná árangri á næsta móti og mótinu eftir það. Koma liðinu á Ólympíuleikana árið 2028 og allt þar á milli. Hvort ég sé að fara út eða ekki verður bara tíminn að leiða í ljós.“ Er sem sagt einhver klásúla er varðar félagslið í samningnum? „Já það eru einhverjar klásúlur um það. En það eru klásúlur á báða bóga. Ég er ekki að velta fyrir mér klásúlunum fyrir mér núna. Núna er ég bara að þjálfa íslenska landsliðið í handbolta. Ég væri alveg til í að sinna þessu starfi til ársins 2032 og engu öðru. Það er ekki hollt að hugsa of langt fram í tímann.“ Stórmót á Íslandi kitlar Þó svo að langur vegur sé fram undan kitlar það Snorra að vera með samning fram yfir HM 2031 þar sem riðill Íslands verður spilaður hér á heimavelli í nýrri þjóðarhöll. „Ég skal alveg viðurkenna það að þegar ég fór fyrst inn í þessar samningaviðræður þá var ég ekki með þetta endilega á bak við eyrað. Að þetta gæti verið staðan. En þegar að þetta fór að vera meira í umræðunni þá kitlaði þetta. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það þarf fullt að ganga upp til að þetta verði að veruleika en ég hefði ekki skrifað undir þennan samning nema að hafa trú á því. Þetta kitlar vissulega. Það gerist ekkert oft að þú stýrir liðinu þínu á heimavelli á stórmóti. Það sem kitlar mig samt mest núna er næsta HM. Það er mikið í húfi þar. Ég hugsa að það eigi eftir að fylla tíma minn meira en akkúrat þetta mót svona í nánustu framtíð.“ Stutt í báðar áttir Takturinn í liðinu hefur verið góður undir stjórn Snorra og náði liðið fjórða sætinu á EM í upphafi árs. Stefnan er sett á medalíur en lítið má út af bregða. Ísland - Króatía Leikur um Bronsið á EM karla í handbolta í Herning Danmörku 2026Vísir/Vilhelm „Ég held að allir sem koma að þessu liði geri sér samt sem áður grein fyrir því að það er stutt í báðar áttir. Við vorum grátlega nálægt því að ná í verðlaun. Mér fannst við sýna að við eigum heima í þessum hópi. Það voru samt sem áður þjóðir sem voru ekki þarna sem finnst þær líka eiga heima þarna. Á meðan ég trúi því að við getum bætt okkur og náð lengra þá er ekkert því til fyrirstöðu að láta sig dreyma allavega. Markmið innan liðsins verða mjög skýr þegar kemur að næsta móti. Auðvitað erum við, eins og alltaf, bundnir af því að ákveðnir menn séu heilir heilsu, að spila og að allt sé í standi þegar að því kemur. Við erum klárlega bjartsýnir. Okkur langar í meira.“ Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið Olnbogi Ægis brotnaði Körfubolti Ægir fluttur í burtu í sjúkrabíl Körfubolti Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Fótbolti Ekitike sleit hásin Fótbolti Oliver keyptur til KA Íslenski boltinn „Þeir geta tekið þetta með sér“ Fótbolti Rory McIlroy gerði dóttur sína vandræðalega Golf „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Fótbolti „Þeir hefðu átt að henda honum út úr húsi fyrir þetta“ Körfubolti Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Fótbolti
„