Sara ætlaði að vera í tíu daga en endaði á því að vera í þrjá mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 08:33 Sara Sigmundsdóttir er mikil áhugakona um flug og fékk líka að fljúga í sólarlaginu í Arizona. @sarasigmunds Íslenska CrossFit-konan Sara Sigmundsdóttir var búin að plana stutta ferð til Arizona-fylkis í Bandaríkjunum en það breyttist snögglega þegar hún fann þá aðstoð sem hún hafði leitað svo lengi að í baráttunni við meiðsladrauginn.
Sara sagði frá ævintýrum sínum í Arizona í færslu á samfélagsmiðlum sínum. „Ferð sem átti bara að vera tíu dagar en endaði á að vera þrír mánuðir,“ skrifaði Sara í upphafi pistils síns. Hún ákvað að taka enga áhættu með endurhæfinguna og sleppti því að taka þátt í undankeppni heimsleikanna í CrossFit. Hún verður því ekki með á heimsleikunum í ár en kemst vonandi aftur á keppnisgólfið seinna í vor. Hætti við að fara til Dúbaí „Ég átti að vera á leiðinni aftur til Dúbaí eftir jól á Íslandi en ég var í miklum erfiðleikum, hnéð á mér batnaði ekki og mér fannst ég vera föst bæði andlega og líkamlega,“ skrifaði Sara. „Daginn fyrir flugið mitt var mælt með þjálfara fyrir mig og eftir símtal við hann ákváðum við Kyle með 24 klukkustunda fyrirvara að breyta áætlunum og fljúga til Arizona í staðinn,“ skrifaði Sara. Hlutirnir fóru loksins að batna „Eftir eina viku af þjálfun og endurlærdómi á hreyfimynstrum vissi ég að ég gæti ekki farið þegar hlutirnir voru loksins að batna. Þremur mánuðum síðar er ég að gera hluti sem ég hafði ekki getað gert í átta mánuði og ég tek framförum í hverri viku. Ferðalaginu er ekki lokið en erfiðasti hlutinn er að baki,“ skrifaði Sara. „Hver hefði getað giskað á að þessi ferð yrði ein sú eftirminnilegasta,“ skrifaði Sara og kom með skemmtilega upptalingu á þessum fyrstu mánuðum á nýju ári á nýjum stað. Upptalninguna má finna hér fyrir neðan en þar segir Sara að fólk hafi komið fram við hana eins og drottningu, hún hafi verið eins amerísk og hægt var og keyrt um á amerískum bíl. Hún passaði Benjamin Button hundaheimsins, öðru nafni Maximus, og varð ástfangin af kaktusum og merkingunni á bak við þá. Hún sá líka draumabílinn sinn, hvítan Ford pallbíl, og flaug í sólsetrinu. „Þannig að takk allir í Arizona fyrir að gera þessa ferð svo magnaða, ég get ekki beðið eftir að koma aftur,“ skrifaði Sara eins og sést hér fyrir neðan. Þar má sjá bæði myndir og myndbönd frá þessum tíma hennar í einum heitasta hluta Bandaríkjanna. View this post on Instagram A post shared by Sara Sigmundsdóttir (@sarasigmunds)
CrossFit Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira