„Nú er serían komin aftur á núll“ Siggeir Ævarsson skrifar 6. apríl 2026 21:37 Jóhann og Helgi á hliðarlínunni í Grindavík í síðasta leik Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Allt er orðið jafnt í einvígi Grindavíkur og Njarðvíkur eftir að Grindvíkingar sóttu torsóttan sigur til Njarðvíkur í kvöld, 84-86.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur í leikslok og hló þegar blaðamaður spurði hvort þessi sigur hefði nokkurn tímann verið í hættu. „Þetta var bara stál í stál allan tímann og við lentum réttu megin við línuna, ég held að það sé bara hægt að orða það þannig. Þetta gat endað á hvorn veginn sem er og sem betur fer fyrir okkur þá erum við sigurvegarar hér í kvöld.“ Grindvíkingar litu ekki vel út framan af leik en hófu seinni hálfleikinn á 10-2 áhlaupi. Jóhann viðurkenndi að hann hefði aðeins látið sína menn heyra það í hálfleik. „Ég æsti mig aðeins en það var bara miðvikudagsfnykur af þessu lungan úr fyrri hálfleiknum. Svo bítum við frá okkur mætum þannig lagað séð klárir í seinni hálfleikinn. En við fáum fullt af sénsum til að slíta þá frá okkur og bara klára þetta en það einhvern veginn gekk ekki. Njarðvíkingarnir bara mjög góðir og skipulagðir og allt það. Eins og ég segi, þá endum við bara réttu megin við línuna.“ Þá viðurkenndi Jóhann fúslega að það væri þunga fargi af honum létt að vera búinn að jafna einvígið. „Algjörlega. Við náttúrulega mætum hérna með bakið upp við veginn, þurftum sigur og það tókst. Torsótt var það en sigur er sigur og við tökum það. Nú er serían komin aftur á núll og við þurfum að vinna tvo leiki. Nú er það bara gamla góða, endurheimta eins mikið og hægt er og mæta klárir á föstudaginn.“ Næsti leikur er föstudagsleikur í Grindavík og Jóhann reiknar með að Grindvíkingar fjölmenni á völlinn. „Vel mætt hér í kvöld og bara hrós á okkar fólk. Stóðu sig virkilega vel. Ég hef fulla trú á að það verði góður fössari heima í Grindavík. Fullt hús og stemming.“
Bónus-deild karla Körfubolti UMF Grindavík Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira