Wilder skoraði á Joshua: „Hann er hræddur“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 23:02 Deontay Wilder vann Derek Chisora á stigum í gær. getty/Richard Pelham Eftir að hafa unnið Derek Chisora á stigum í gær skoraði Deontay Wilder á Anthony Joshua að mæta sér í hringnum.
Joshua var í O2-höllinni í Lundúnum í gær og fylgdist með bardaganum en þeir Chisora eru miklir vinir. Joshua lenti í bílslysi í Nígeríu undir lok síðasta árs þar sem tveir vinir hans létust. Hann hefur ekkert keppt síðan þá en í síðasta bardaga sínum, 19. desember í fyrra, sigraði Joshua samfélagsmiðlastjörnuna Jake Paul. Mikið hefur verið rætt og ritað um möguleikann á bardaga milli Joshuas og Tysons Fury en Wilder er meira en klár í að takast á við Joshua. „Gerum þetta,“ sagði Wilder er hann hitti Joshua eftir bardagann í gær. „Hann er hræddur,“ bætti bandaríski boxarinn við. Kallið mig Herra Hreinan Í viðtölum eftir bardagann staðfesti Wilder að hann hefði skorað á Joshua. „Þetta voru ekki nokkur orð. Ég klesst'ann og sagði: Gerum þetta,“ sagði Wilder. „Ég er tilbúinn fyrir alla svo lengi sem þessir gaurar eru í þungavigtinni. Þú getur kallað mig Herra Hreinan því ég vil hreinsa alla deildina upp. Þungavigtin er ekkert án Deontay Wilder.“ Tveir dómarar dæmdu Wilder sigur í bardaga gærdagsins en einn taldi Chisora hafa haft betur. Hinn fertugi Wilder hefur unnið 45 af fimmtíu bardögum sínum, þar af 43 með rothöggi. Hann var ósigraður í 43 fyrstu bardögum sínum, allt þar til hann tapaði fyrir Fury í febrúar 2020. Wilder og Fury mættust í þrígang á þriggja ára tímabili. Fury vann tvo bardaga og einu sinni varð jafntefli.
Box Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Fleiri fréttir Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Sjá meira