Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. apríl 2026 19:46 Lucas Perri, markvörður Leeds United, fagnar með Dominic Calvert-Lewin eftir leikinn gegn West Ham United. getty/Mike Hewitt Lucas Perri brosti út að eyrum eftir bikarleik West Ham United og Leeds United í dag. Brasilíski markvörðurinn reyndist hetja Leeds en hann varði tvær spyrnur frá leikmönnum West Ham í vítaspyrnukeppninni þar sem úrslit leiksins réðust.
Þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í leiknum á Lundúnaleikvanginum í dag var Leeds í kjörstöðu, með 0-2 forystu. En West Ham jafnaði með tveimur mörkum í uppbótartíma og því þurfti að framlengja. Þar hélt dramatíkin áfram en tvö mörk voru dæmd af West Ham. Engin lögleg mörk litu þó dagsins ljós og því þurfti að útkljá málin í vítakeppni. Þar reyndist Perri mikilvægur en hann varði frá Jarrod Bowen og Pablo á meðan Leeds skoraði úr fjórum af fimm spyrnum sínum. „Þetta var stórkostlegt. Þetta eru töfrar bikarsins sem við tölum allir um. Þetta var brjálaður leikur og ótrúleg augnablik. Við erum svo ánægðir að við höfum unnið í lokin, vítakeppni og allt. Núna fögnum við og höldum áfram,“ sagði Perri eftir leikinn í dag. „Við þurfum að vera tilbúnir fyrir allt og eftir að þeir skoruðu fyrsta markið vissum við að þeir myndu sækja af öllum mætti til að knýja fram framlengingu. Guði sé lof fyrir rangstöðuna í fyrri hálfleik framlengingarinnar og ég er svo ánægður að við höfum unnið.“ Perri slapp með skrekkinn í byrjun fyrri hálfleiks framlengingarinnar þegar Taty Castellanos skoraði eftir slæm mistök markvarðarins. En markið var dæmt af vegna rangstöðu. Pablo kom boltanum sömuleiðis í netið en aftur var dæmd rangstaða. Leeds er komið í undanúrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn síðan 1987. Þar mætir liðið Chelsea. Leeds er í 15. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 33 stig, fjórum stigum frá fallsæti þegar sjö umferðum er ólokið. Næsti leikur Leeds er gegn Manchester United á Old Trafford mánudaginn 13. apríl.
Enski boltinn Leeds United Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira