Mótefni gegn afmennskun og kúgun Þórarinn Þórarinsson skrifar 31. mars 2026 20:00 Biggi, Margrét Rán og Daníel Ágúst munu hækka valin sýnishorn úr niðurstöðum reif-rannsókna og tónlistartilrauna GusGus upp í 11 á tónleikunum í Höllinni í maí. Mynd/Saga Sig GusGus ætlar að sprengja sumarið í gang í lok maí með heilmikilli dansveislu sem Biggi Veira lýsir sem ákveðnu viðbragði við afmælistónleikum síðasta árs þar sem miklu færri en vildu komust að þegar bandið reif stemninguna í Höllinni í tætlur. „
Þetta eru í raun og veru bara viðbragðstónleikar af því að það var svo mikið stuð í fyrra,“ segir Biggi Veira um tónleika GusGus í Höllinni 30. maí, sem eru meðal annars hugsaðir sem sárabót fyrir þau sem komust ekki á 30 ára afmælistónleikana í fyrra.Biggi leggur áherslu á að ekki standi til að endurtaka afmælisveisluna. „Við erum í raun og veru bara að fara að prófa að stilla aðeins hærra í reifinu og aðeins niður í poppinu þannig að þetta verður aðeins öðruvísi dagskrá og meira partímiðuð.“Stefnan er því nú tekin á aðeins öðruvísi upplifun en síðast. „Líka bara til þess að þau sem komu í fyrra og voru ánægð en eru til í að sparka sumrinu í gang með okkur geti þá bara komið aftur og fengið alls konar annað. Reifið verður að lifa Uppleggið er í raun og veru að byrja þetta sumar í góðu stuði og ekki veitir af eins og heimsástandið er. Ef við eigum að komast áfram sem mannkyn þarf að framleiða mótefni gegn kúgun, afmennskun og sjálfseyðandi samfélagi. Reiflistin þarf því að lifa og GusGus mun blása í hana lífi af öllu afli,“ segir Biggi.„Við fengum ótrúleg viðbrögð eftir síðustu tónleika. Það var ljóst að fólk vildi meira,“ bætir Daníel Ágúst, félagi hans, við. „Þess vegna förum við aftur í Höllina. Þetta verður stærra og hærra og tónlistin verður samofin taugakerfinu þínu.“ Reiknað er með umtalsverðum gestagangi á sviðinu í maí og Biggi segir þegar búið að ganga frá því að Birnir, einn vinsælasti rappari landsins, mæti til leiks. „Okkur langar að spila eitthvað af nýja efninu sem við erum að vinna með. Við erum aðeins búnir að spila eitthvað af þessum lögum „læf“ og þeim hefur verið vel tekið.“Þar á meðal er það sem Biggi kallar „reif teknó“ lag sem GusGus gerðu með Birni og kemur út 9. apríl. „Þannig að mig langar dálítið að spila eitthvað af þessu nýja reif, eða dansstöffi, sem er svolítið meira „upbeat“ og við erum að vinna með.Þótt ég hafi aldrei tekið jafn langa tónleika og í fyrra þegar við spiluðum einhver 24 lög í tvo og hálfan tíma þá voru nokkur danslög sem við tókum ekki en ætlum að gera það núna.“ Einbeittur partívilji DJ Margeir, einhver áhrifamesti plötusnúður landsins og lykilmaður í þróun íslenskrar danstónlistar, stígur einnig á svið og hann segir markmið kvöldsins einfalt: „Að breyta Laugardalshöllinni í stærsta dansgólf landsins í eina kvöldstund og láta þúsundir hjarta slá í takt.“Veiran segist hafa fylgst með elektrónískri tónlistarmenningu í áratugi, gegnum þann níunda og þann tíunda þar sem reifið sprakk út með tilheyrandi undrum og stórmerkjum. „Þetta var bara eitthvað svo áhugavert sem kom með reif-kúltúrnum í 90´s-inu og einhvern veginn miðað að mannlegri harmóníu þannig að þetta varð að mannbætandi fyrirbrigði.Þetta er í raun og veru vilji til partístands, bara vera saman í nánd við annað fólk. Við erum náttúrlega hópdýr þannig að það er mjög mikilvægt fyrir okkar meintu geðheilsu að ná upp góðri hóptilfinningu.Ég meina, bara eitt gott kvöld á geðveiku reifi, þar sem allir eru einhvern veginn að tapa sér í mómentinu, fyllir mann einhvern veginn trú á öllu. Bara gleði í loftinu og allir brosandi. Notadrjúgur gjörningur GusGus er greinilega ekki enn komið fram yfir síðasta neysludag eftir rúm 30 ár þannig að reifið hlýtur að mega teljast endingargott?„Mér finnst gjörningurinn sem startaði þessu bandi hafa verið dálítið notadrjúgur en í honum fólst einhvern veginn að leika okkur að því að búa til svona klúbba- og „underground“-skotið popp, sem þróaðist kannski út í að verða líka svolítið elektrónískt,“ segir Biggi um „poppsmiðjuna“ GusGus.Biggi segist, í samtölum við goðsögnina Bjarka teknó, hafa komist að því fyrir nokkrum árum að það væri vafasamt hversu lengi væri hægt að finna upp á einhverju nýju. „En það væru mjög mikil tækifæri fólgin í því að blanda ólíkum hugmyndum, úr fortíð, nútíð og öðru, saman. Mér fannst þessi niðurstaða okkar Bjarka allavega vera ágætis palletta til að vinna með og þá fer maður svolítið að leita að einhverju sem skoða mætti betur. „Og það er náttúrlega það sem við erum að gera núna, að fara aðeins til baka í 90´s-ið og reyna einhvern veginn að vinna með það væb og blanda 80´s frekar frjálslega saman við það.“ Annars konar framtíð Biggi segir að með þessari aðferð reyni GusGus að finna leið inn í „annars konar framtíðartónlist“ án þess að fara beinlínis í gegnum það sem hefur gerst í millitíðinni. „Heldur í raun og veru bakka inn í 90´s-ið og inn í einhvers konar annars konar framtíð. Það má eiginlega kalla þetta svona retro fútúrisma.“Þetta sé því í raun framhald á rannsóknum og tilraunum sem á sínum tíma hefðu getað farið í aðrar áttir sem hann ætli að prófa núna. „Annars hefur þetta náttúrlega alltaf verið þannig að maður er bara að reyna að uppfæra þetta í nútímaveruleika í hljóð- og rýmisupplifun.“Dagskrá kvöldsins hefst klukkan 18, fyrr en almennt gengur og gerist, að kvöldi laugardagsins 30. maí og hægt verður að koma saman á útisvæði við Höllina áður en GusGus tendrar danssprengjuna.Miðasala er í fullum gangi hér.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Samkvæmislífið Mest lesið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Lífið Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Lífið Dó ekki ráðalaus þegar filippseyska löggan mætti Tónlist Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met Bíó og sjónvarp Opnar sig um þunglyndi og depurð Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið Fyrsta platan í tuttugu ár Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Fleiri fréttir Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? Sjá meira