Erlent

Ofsa­hræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flug­tak

Samúel Karl Ólason skrifar
Skjáskot úr myndbandi sem farþegi tók.
Skjáskot úr myndbandi sem farþegi tók.

Ofsahræðsla greip um sig meðal farþega flugvélar Delta Air Lines þegar henni var flogið á loft í Sao Paulo í Brasilíu í gær. Rétt eftir flugtak slökknaði á öðrum hreyfli vélarinnar með miklum látum og hvellum og kviknaði í honum. Engan sakaði þó og tókst flugmönnum flugvélarinnar að snúa við og framkvæma neyðarlendingu.

Um var að ræða flugvél af gerðinni Airbus A330-300.

Verið var að leggja af stað til Atlanta í Georgíu í Bandaríkjunum og voru 272 farþegar og fjórtán áhafnarmeðlimir um borð, samkvæmt frétt CBS News.

USA Today segir ekki liggja fyrir hvers vegna eldurinn kviknaði í hreyflinum en slíkt þykir mjög sjaldgæft.

Tvö myndbönd af atvikinu hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Annað var tekið upp í gærkvöldi á flugvellinum og sýnir þegar eldurinn kviknaði í hreyflinum.

Hitt myndbandið fór í dreifingu í dag og var tekið af farþega um borð í flugvélinni. Þar má vel heyra hræðsluna sem greip um sig um borð. Bæði myndböndin má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×