Hér er fúsk, um fúsk, frá fúski til fúsks Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar 30. mars 2026 11:02 Við hjá VÁ! Félagi um vernd fjarðar glöddumst innilega um daginn þegar sveitarfélagið sem Seyðisfjörður tilheyrir, Múlaþing, sendi HMS harðorða umsögn vegna byggingarleyfisumsóknar Kaldvíkur. Umsóknin snýr að uppsetningu sjókvía með tilheyrandi usla fyrir náttúru og ásýnd Seyðisfjarðar. Múlaþing benti á skörun við netlög landeigenda, helgunarsvæði Farice-sæstrengsins, áhrif á siglingaöryggi og ýmislegt annað sem varða réttindi, skipulag og öryggi. Þar eru líka dregnar fram alvarlegar spurningar um umhverfisáhættu og náttúruvá sem enn hefur ekki verið metin með fullnægjandi hætti. Þetta er mikið fagnaðarefni enda nákvæmlega þau atriði sem VÁ hefur bent á frá upphafi. Þetta er því vending sem kallar á alvöru umræðu um það hvort framkvæmdin rúmist yfirhöfuð innan þeirra marka sem lög og aðstæður setja og jafnframt hvort við séum ekki komin á endastöð í þessu máli. Það var því verulegt sjokk að heyra fulltrúa HMS lýsa því í fréttum á RÚV nýlega að stofnunin líti svo á að Kaldvík þyrfti einungis að „hnika hnitum“. Við sem höfum fylgst með þessu máli í fimm ár hristum höfuðið. HMS og Kaldvík hafa verið í miklum hnitadansi undanfarin ár en raunverulegi vandinn liggur ekki þar. Vandinn er sá að sjókvíaeldi kemst einfaldlega ekki fyrir í Seyðisfirði — sama hvaða skapandi hugsun er notuð til að sveigja lög Kaldvík til hagsbóta. Jónsbók eða stórstraumsfjara? Það verður eiginlega að byrja á því að HMS hefur gefið það út að hún hyggist skilgreina sjálft mannvirkið við sjókvíaeldi við jaðar kvíanna, og ákveða þar með að akkerisfestingar, tengingar og allur sá búnaður sem heldur kerfinu uppi, og myndar hina raunverulegu eldisstöð, sé aukaatriði. Það er sérkennileg nálgun, því flestir skilja að kvíar hanga ekki í lausu lofti. Þær eru festar við botninn og taka til sín mun stærra svæði en það sem sést á yfirborðinu. Með þessari þröngu skilgreiningu verður næsta skref að draga 150 metra veiðibann frá jaðri kvía. Samkvæmt HMS er nú ætlunin að horfa til dýptarreglu Jónsbókar (frá 1281) við álitaefni um veiðirétt. Þar verða til þeir metrar - sem duga til að halda veiðibanninu utan eignalands. Það er virkilega athyglisvert þar sem gildandi lög um skipulag haf- og strandsvæða frá 2018 miða netlög við 115 metra frá stórstraumsfjöru og eignaréttur landeigenda þannig afmarkaður með skýrum hætti. Þannig lesandi góður - þú heyrðir rétt: Ef miðað er við stórstraumsfjöru, eins og lög um haf- og strandsvæði gera ráð fyrir, lendir veiðibannið inn á eignalandi landeigenda. Ef stuðst er við Jónsbók í tengslum við veiðirétt, verður allt í einu til pláss fyrir öll ósköpin. Það er dálítið eins og að velja úr lagabókinni það sem hentar hverju sinni og vona að heildarmyndin fari framhjá fólki. Já, HMS virðist leggja sig töluvert fram fyrir framkvæmdaaðila málsins. Það vekur óhjákvæmilega spurninguna um það fyrir hvern stjórnsýslan sé að vinna? Á sama tíma liggur fyrir að nýtingarreitir í strandsvæðaskipulagi Austfjarða ná samkvæmt mælingum inn á netlög landeigenda þegar miðað er við stórstraumsfjöru. Við höfum sent fjölda tölvupósta á hina ýmsu aðila í leit að svæðisráðinu, en viti menn, það virðist hvorki vera virkt né starfandi lengur. Þar með er ekki hægt að fara í nauðsynlega endurskoðun á skipulaginu, og við skiljum einfaldlega ekki hvernig slíkt fyrirkomulag stenst skoðun. Þegar skipulag verður að aðlögunarvinnu Sú tilfinning hefur smám saman styrkst að ferlið í kringum sjókvíaeldi í Seyðisfirði hafi þróast úr skipulagi yfir í einhvers konar aðlögun. Í stað þess að leggja heildarmat á aðstæður og spyrja hvort framkvæmdin eigi þar yfirhöfuð heima, hefur ítrekað verið reynt að færa mörk, breyta afmörkun og túlka reglur þannig að hægt sé að láta framkvæmdina falla að fyrirliggjandi svæðum. Þegar slíkt gerist aftur og aftur er hætt við að draumurinn um framkvæmdina verði ofar raunveruleikanum. Það er hættuleg þróun, ekki bara fyrir eitt samfélag heldur fyrir traustið á milli almennings og þeirra sem fara með skipulagsvald. Er þetta orðið normið? Það sem veldur kannski mestum áhyggjum er ekki eitt einstakt atvik heldur mynstrið. Vilji einstaklingar eða hagsmunaaðilar verja sig gegn yfirgangi stórfyrirtækja skuli þeir vessgú sjálfir kafa ofan í lagabálka, skipulagsgögn og mælingar.Í lýðræðisþjóðfélagi ætti þetta að vera unnið af fagaðilum í til þess bærum stofnunum, þar sem sérfæðingar eru á fullu kaupi við að sjá um þetta. Við biðjum nýjan ráðherra skipulagsmála, Ragnar Þór Ingólfsson, að fara ofan í saumana á þessu máli og taka af skarið, lýðræðinu og Seyðisfirði til heilla. Seyðisfjörður og stjórnsýslufúskið á tveimur mínútum Til að gera þetta flókna mál aðgengilegt almenningi settum við saman stutta teiknimynd þegar eitt ár var liðið frá því að MAST auglýsti rekstrarleyfistillögu fyrir Seyðisfjörð. Hún er tilraun til að draga saman stöðuna á einfaldan hátt og sýna heildarmyndina sem týnist iðulega í tæknilegum smáatriðum og stjórnsýsluorðum sem svæfa venjulegt fólk. Við biðjum þig að horfa, deila og varða þannig leiðina með okkur að vernd Seyðisfjarðar. Myndbandið er aðgengilegt hér. Höfundur er formaður VÁ, félags um vernd fjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun