Þrír af hverjum fjórum stuðningsmönnum ósáttir við VAR Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 10:02 VAR hefur verið notað í ensku úrvalsdeildinni undanfarin sjö tímabil. getty/Nick Potts Sjötíuogfimm prósent stuðningsmanna liðanna í ensku úrvalsdeildinni eru mótfallin myndbandsdómgæslunni (VAR). Níutíu prósent stuðningsmannanna segja að VAR hafi gert leikinn leiðinlegri.
Byrjað var að nota VAR í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2019-20. Sitt sýnist hverjum um ágæti myndbandsdómgæslunnar eins og bersýnilega kom fram í könnun sem stuðningsmannasamtökin FSA gerðu meðal aðdáenda félaganna tuttugu í ensku úrvalsdeildinni. Tæplega átta þúsund manns tóku þátt í könnuninni og 75 prósent þeirra vilja ekki hafa VAR í ensku úrvalsdeildinni. Níutíu prósent svarenda töldu að VAR hefði ekki aukið á upplifun á leikdegi og gert hana ánægjulegri, 91 prósent telja að VAR skemmi fyrir þegar kemur að gleðinni sem fylgir því að fagna marki og 94 prósent eru ósammála þeirri fullyrðingu að VAR geri það ánægjulegra að fylgjast með fótbolta í sjónvarpinu. Þá telja 72 prósent þeirra sem svöruðu könnuninni að VAR hafi ekki gert dómgæsluna nákvæmari. „Við höfum öll verið svo lengi með VAR að við sjáum neikvæðar afleiðingar þess á leikinn,“ sagði Thomas Concannon frá FSA sem lét framkvæma könnunina. „Fólk er pirrað yfir tímanum sem fer í þetta, pirrað yfir nákvæmninni og pirrað yfir minnkandi gleði augnabliksins. Þetta tekur frá fótboltanum það sem hann á að vera og hvað þessi sérstöku augnablik eiga að snúast um.“ Í tilkynningu frá ensku úrvalsdeildinni segir að hún vilji að VAR hafi sem minnst áhrif á upplifun stuðningsmanna á leikdegi. Rannsóknir þeirra sýni þó að flestir stuðningsmenn vilji halda myndbandsdómgæslunni en bæta notkun hennar. Þrátt fyrir þessar niðurstöður verður að teljast afar ólíklegt að hætt verði með VAR. Fyrir tveimur árum kusu nítján af tuttugu félögum í ensku úrvalsdeildinni að halda myndbandsdómgæslunni. Aðeins Wolves var mótfallið því. Til að hætt verði með VAR þurfa fjórtán af félögunum tuttugu í ensku úrvalsdeildinni að kjósa gegn myndbandsdómgæslunni.
Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira