Arnar: Svo áttar maður sig á því að maður er fáviti Árni Jóhannsson skrifar 26. mars 2026 21:58 Arnar Guðjónsson að furða sig á einhverju en gat verið ánægður með sigurinn. vísir / Vilhelm Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var himinlifandi með sigur sinna manna á KR í lokaleik deildarkeppni Bónus deildar karla í körfubolta. Tindastóll hafði sigur í frábærum leik 101-99 þar sem úrslitin réðust í lok leiksins. „
Þetta er bara stór sigur fyrir okkur“, sagði Arnar þegar hann var spurður út í hversu ánægður hann var með að ná að klára leikinn með sigri. „Við erum að jafna besta árangur Tindastóls í 22 leikja deild, við náðum reyndar að vinna deildarmeistaratitilinn síðast en ekki núna en við unnum einum sigri meira núna. Það er bara mjög skemmtilegt því við spiluðum 11 auka leiki. Það er eitthvað sem við erum stoltir af.“ Tindastóll gulltryggði með sigrinum að þeir endi í öðru sæti deildarkeppninnar og var Arnar spurður að því hversu mikilvægt það væri að vera í því sæti úr því sem var komið með fyrsta sætið. „Það skiptir bara máli ef við stöndum okkur vel í átta liða úrslitum.“ Arnar var ekki tilbúinn að leggja mat á það hvernig honum litist á að mæta ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. „Við kíkjum bara á það þegar við komum heim. Nú er bara að bomba heim áður en þeir loka á okkur fjallið.“ Hvernig unnu Tindastóll þennan leik? „Ég veit það ekki alveg. Við áttum í töluverðu basli með þá í upphafi leiks. Mér fannst við binda vörnina betur saman þegar leið á og við fengum framlag frá mörgum.“ Það var mikil orka í leikmönnum og hátt hitastig jafnvel. Arnar var spurður að því hvort hitastigið hafi jafnvel verið of hátt. „Nei, mér fannst mjög skemmtilegt. Það var dæmt mjög mikið í byrjun og svo of lítið. Það er kannski það helsta.“ Fannst Arnari skrýtið hvernig munaði á dómgæslunni. „Það munaði ekki á dómgæslunni á milli liða. Það var bara mismunandi á hvað var dæmt. Þeir náðu stórum dómum í restina sem var mjög vel gert og þeir áttu hörkuleik dómararnir. Það er alltaf eitthvað. Svo fer maður heim og horfir á þetta og áttar sig á því að maður er fáviti.“
Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjá meira