Handbolti

Bein út­sending: Hverjar eiga að koma Ís­landi á fjórða stór­mótið í röð?

Sindri Sverrisson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir og Sandra Erlingsdóttir ætla á EM í desember og sigurinn magnaði gegn Svartfellingum jók líkurnar á því til muna.
Elín Klara Þorkelsdóttir og Sandra Erlingsdóttir ætla á EM í desember og sigurinn magnaði gegn Svartfellingum jók líkurnar á því til muna. vísir/Hulda Margrét

Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, situr fyrir svörum á blaðamannafundi í dag og kynnir nýjasta leikmannahóp sinn, í beinni útsendingu á Vísi.

Fundurinn á að hefjast um klukkan 13 og bein útsending er í spilaranum hér að neðan.

Ísland spilar við Færeyjar ytra 8. apríl og gegn Portúgal á Ásvöllum 12. apríl, í síðustu umferðunum í undankeppni EM.

Eftir sigurinn frækna gegn Svartfjallalandi í byrjun mars er Ísland með örlögin í eigin höndum. Liðið er þó enn neðst í sínum riðli, með tvö stig, en Færeyjar og Portúgal með fjögur stig hvort og Svartfellingar sex. Efstu tvö liðin fara á EM og fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í undanriðlunum sex, komast einnig á mótið.

Evrópumótið sjálft fer fram í desember og gæti orðið fjórða stórmótið í röð sem Ísland kemst á. Mótið fer fram í fimm löndum: Tékklandi, Póllandi, Rúmeníu, Slóvakíu og Tyrklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×