„Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar“ Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2026 17:02 Younes Belhanda réðist á Birki Bjarnason á æfingu Adana sumarið 2022 og má segja að það hafi verið upphafið að endinum fyrir Birki hjá félaginu. Samsett/Getty Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í fótbolta, lenti í ótrúlegum hremmingum á seinna tímabili sínu í Tyrklandi. Hann varð fyrir árás liðsfélaga sem áður hafði ógnað öðrum liðsfélaga með hnífi.
Birkir ræddi um lífið í Tyrklandi og ferilinn í heild í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark en hann var leikmaður Adana Demirspor 2021-23. Birkir hafði verið afar tvístígandi varðandi það að fara til félagsins en gekk svo hins vegar frábærlega fyrra tímabilið sitt þar. Fimm dögum fyrir seinna tímabilið varð hann hins vegar fyrir árás Marokkóans Younes Belhanda á æfingu, fékk lítið að spila eftir það og kvaddi svo félagið fyrr en ella eftir jarðskjálftann hryllilega í febrúar 2023 sem kostaði meira en 55.000 manns lífið. Takkarnir í nárann og negla í kjálkann „Ég átti þarna frábært fyrsta tímabil. Ég kom ótrúlega seint að skrifa undir [samninginn] og þá eru þeir búnir að kaupa Belhanda, sem var fyrirliði Galatasaray. Hann átti að vera í þessari stöðu, tíunni fyrir aftan Balotelli. En ég spilaði eiginlega allt tímabilið á meðan að hann var mikið á bekknum og eitthvað í meiðslum,“ segir Birkir en þetta hlutskipti virðist hafa farið afar illa í Belhanda. „Þetta er Marokkói, með skap…“ segir Birkir og fer svo yfir það sem gerðist örfáum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins, í „5 á 5“-spili á æfingu: „Ég er að pressa hann. Hann fær boltann, fer svolítið frá mér og fær smá högg frá öðrum, kemur svo til baka og ég er að pressa á hann. Svo snýr hann sér við, setur takkana í nárann á mér og neglir svo í kjálkann á mér. Eins fast og hann gat. Ég fór bara niður. Svo komu leikmenn þarna, og ég ætlaði náttúrulega bara að æða í hann, en okkur var bara haldið frá hvorum öðrum,“ segir Birkir. Montella þóttist ekkert hafa séð Ítalinn Vincenzo Montella var þjálfari Adana á þessum tíma: „Hann þykist ekki hafa séð þetta. Belhanda var ekki sendur inn heldur á bekk hjá æfingasvæðinu og við hinir höldum bara áfram æfingu,“ segir Birkir sem átti sem sagt bara að halda áfram að æfa eftir bylmings kjaftshögg frá liðsfélaga sínum: „Ég vissi bara ekki hvar ég væri, eða hvað hefði gerst. Svo að lokum flautaði hann æfinguna af, enda allir í sjokki. Við förum inn og svo koma varaforsetinn og íþróttastjórinn upp á herbergi til mín, og byrja að afsaka þetta. Segja að þetta eigi ekki að gerast og spyrja hvernig ég hafi það. Ég sagði bara að ég væri ekki í lagi. Þeir grátbiðja mig um að fyrirgefa honum. Fóru með ræðuna um að við værum bræður og fjölskylda, en ég sagði bara að það væri ekki séns [að ég fyrirgæfi honum]. Ef ég sé hann á æfingu þá brýt ég á honum lappirnar, sagði ég við þá.“ Younes Belhanda og Birkri Bjarnason börðust um sæti í liði Adana og hér kemur Birkir inn á fyrir Marokkóann í leik við Fenerbahce.Getty Hafði ógnað liðsfélaga með hnífi Varaforsetinn og íþróttastjórinn héldu áfram að reyna að miðla málum og forseti félagsins mætti svo á svæðið og sagði að Belhanda hefði verið sendur heim. Flestir í leikmannahópnum stóðu með Birki og sögðu að Belhanda yrði að víkja en forsetinn endaði fundinn á að setja það í hendurnar á Birki hver örlög Belhanda yrðu: „Henti þessu á bara á mig, rétt eftir að þetta gerðist. Ég var bara í sjokki og sagði ekki neitt,“ segir Birkir og fékk ekki mikinn tíma til að velta málinu fyrir sér. „Svo byrjaði ég að verða svolítið smeykur. Tímabilið á undan hafði hann verið í rifrildi við annan í hópnum, Tyrkja, aðalvarnarmanninn okkar sem var algjört naut. Þeir voru eitthvað að rífast á æfingasvæðinu og Belhanda var sendur inn í klefa. Eftir æfingu löbbum við inn og þá bíður hann þar með hníf. Þannig að ég fór bara að verða smeykur við að hann myndi koma á eftir mér líka,“ segir Birkir. „Mjög erfitt eftir þetta“ Áfram var ýtt á Birki að taka ákvörðun, og helst að fyrirgefa Belhanda, en Birkir benti á að það væri nú ekki eðlilegt að hann væri neyddur til að taka þessa ákvörðun. Hann ráðfærði sig við umboðsmann sinn og endaði á að segja forráðamönnum Adana að þeir yrðu sjálfir að taka ákvörðunina. Skömmu síðar var Belhanda svo mættur á æfingu: „Hann baðst afsökunar en ég hafði engan áhuga á að tala við hann. Þar af leiðandi var þetta mjög erfitt eftir þetta, enda var hann mjög stór í Tyrklandi og hjá forsetanum. Eftir þetta spilaði ég nánast ekki neitt,“ segir Birkir. Hann gekk svo í raðir síns gamla félags Viking í Noregi en lauk ferlinum með ítalska félaginu Brescia í fyrra. Birkir á að baki 113 A-landsleiki, sem er Íslandsmet, og var í aðalhlutverki með landsliðinu þegar það náði sínum hæstu hæðum, á EM 2016 og HM 2018.
Tyrkneski boltinn Fótbolti Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjá meira